Innlent | Morgunblaðið | 8.8.2026 | 21:06 Tækifæri til eflingar geimvísindunum Almyrkvi Almyrkvinn verður sá fyrsti sem sést hefur frá Spáni síðan árið 1905 og mun vara í um 90 sekúndur. Tækifæri skapast fyrir vísindamenn til að auka þekkingu sína. AFP/Cesar Manso Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Vísindamenn ætla að nýta sér almyrkvann í næstu viku sem sjaldgæft tækifæri til að læra meira um stormasamt og óútreiknanlegt eðli sólstjörnunnar okkar. Er tunglið skyggir á sólina þann 12. ágúst mun teymi vísindamanna á Spáni hefjast handa við að rannsaka segulsvið sólarinnar, lofthjúp og öflugt veður sem getur valdið truflunum hér á jörðu niðri. Löng hefð er fyrir því að nýta sólmyrkva til að ná fram vísindalegum byltingum, samkvæmt því sem fram kemur í umfjöllun AFP. Það var einmitt við athugun á sólmyrkva þann 29. maí 1919 á vesturafrísku eyjunni Principe sem breski stjörnufræðingurinn Arthur Eddington staðfesti afstæðiskenningu Alberts Einsteins. Hann gerði það með því að fylgjast með áhrifum ljósbeygjufyrirbæris sem kallast þyngdarlinsuhrif á stjörnur sem urðu sýnilegar á meðan töfrandi ljós sólarinnar var hulið. Meira en öld síðar munu vísindamenn fylgjast með almyrkva á sólu sem standa mun yfir í eina mínútu og 40 sekúndur á stóru svæði á Norður-Spáni í næstu viku. „Vinna okkar miðar að því að skilja eðlisfræðilega ferla sem liggja að baki virkni sólarinnar,“ segir Allan Sacha Brun, stjarneðlisfræðingur hjá frönsku kjarnorkumálastofnuninni, í samtali við AFP. Sérfræðingar vinna daglega að líkönum sem miða að því að útskýra virkni sólarinnar, sem gerir þeim kleift „að setja sólina aftur í samhengi við þróunartímalínu sína, frá fæðingu til dauða,“ bætti hann við. „Við erum ótrúlega heppin“ Sólin spýr stöðugt frá sér efni og hlöðnum ögnum ásamt því að leysa stundum úr læðingi stórfellda sólstorma sem skjóta út risasprengingum af plasma og öðrum efnum. Þegar þessi efni skella á segulsviði jarðar geta þau slegið út gervihnetti, ógnað geimförum og skapað litrík norðurljós á himni á norður- og suðurbreiddargráðum. „Þessi fyrirbæri fylgja reglulegri hringrás og ná hámarki á 11 ára fresti,“ segir Brun. „Árið 2024 náði sólin hámarki 25. hringrásar sinnar.“ Í næstu viku munu vísindamenn CEA einbeita sér að kórónu sólarinnar, sem er ysta lag lofthjúps hennar. „Við erum ótrúlega heppin; tunglið er 400 sinnum minna en sólin, en það er líka 400 sinnum nær okkur,“ sagði Brun. Þessi afar sjaldgæfa tilviljun gerir það að verkum að tunglið skyggir á ljós sólarinnar en leyfir vísindamönnum samt sem áður að sjá hvað er að gerast í lofthjúpi hennar. Kóróna sólarinnar teygir sig tíu milljónir kílómetra út og er milljón sinnum daufari en yfirborð hennar, sem kallast ljóshvolf. Kórónan getur þó náð allt að tveggja milljóna gráða hita á Celsíus. Á venjulegum tímum, þegar enginn sólmyrkvi er, rannsaka vísindamenn lofthjúp sólarinnar með gervihnöttum sem eru búnir kórónurita, „síu sem útilokar ljóshvolfið“, útskýrði Brun. En almyrkvar geta jafnvel leyft vísindamönnum að fá sjaldgæfa sýn á lithvolfið, lagið í lofthjúpnum sem er á milli kórónunnar og yfirborðsins. Hvatning fyrir geimvísindarannsóknir Vísindamenn hjá Evrópsku geimferðastofnuninni (ESA) munu greina sólmyrkvann í næstu viku í von um að læra meira um sólvinda. „Af hverju breiðast sólstormar út á þennan hátt? Hver er uppbygging þeirra og getum við þróað líkön sem gera okkur kleift að spá fyrir um þá?“ spyr Carole Mundell vísindastjóri ESA. Solar Orbiter-könnunarfarið frá ESA, sem skotið var á loft árið 2020, hefur verið önnum kafið við að safna gögnum um lofthjúp og vind sólarinnar. Sólmyrkvar eru tækifæri til að „prófa hversu góð líkönin okkar eru, eða hversu slæm,“ sagði Miho Janvier, einn af aðalrannsakendum leiðangursins. Í öðrum leiðangri ESA sem kallast Proba-3 eru nú notuð þrjú geimför sem fljúga í samstilltri fylkingu til að búa til sína eigin litlu sólmyrkva. Einnig eru áform um leiðangur sem kallast MESOM þar sem vonast er til að senda geimfar inn í skugga tunglsins til að ná mun lengri sýn á fyrirbærið. Lucie Green, sóleðlisfræðingur við University College London sem vinnur að leiðangrinum, segir almyrkva á sólu vera „hvetjandi fyrir alla, jafnt listamenn sem vísindamenn“ og bætti við: „Það sem við sjáum á jörðinni er hvatning fyrir það sem við viljum gera í geimvísindarannsóknum okkar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hafrún hetja Bröndby í vítaspyrnukeppninni Tækifæri til eflingar geimvísindunum Fjórir létust í þyrluslysi Kókaín og heróín ollu andláti NBA-leikmannsins Krefjast þess að tónleikum Jared Leto verði aflýst Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Ég er ekkert að fegra lífið Tölvan ekki lengur úr töskunni Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Ég er ekkert að fegra lífið „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Hafrún hetja Bröndby í vítaspyrnukeppninni Tækifæri til eflingar geimvísindunum Fjórir létust í þyrluslysi Kókaín og heróín ollu andláti NBA-leikmannsins Krefjast þess að tónleikum Jared Leto verði aflýst Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Bandero ekki lengur haldið á lokuðu svæði Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Ég er ekkert að fegra lífið Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Ég er ekkert að fegra lífið „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“