Ferðamenn fylla göturnar í annars litlum og rólegum þorpum á Spáni vegna almyrkvans sem sést þar í dag. Myrkvinn færist þar yfir rúmum hálftíma seinna en hér á landi. Þá verður klukkan tæplega hálf níu að kvöldi og sólin lágt á lofti. Myrkvinn færist norður eftir Íberíuskaganum frá Atlantshafi suður til Miðjarðarhafs. Mikil umferð hefur verið á Spáni í dag af erlendum bílum á leið suður á bóginn til að vera á sem bestum stað til að berja dýrðina augum - þó ekki berum augum meðan á deildarmyrkvanum stendur því þá þarf að nota sólmyrkvagleraugun. Þetta er fyrsti almyrkvinn á Spáni í tæp 100 ár. Brian May, sem er þekktastur sem gítarleikari hljómsveitarinnar Queen en er jafnframt stjörnufræðingur, er meðal þeirra sem fór til Spánar til að sjá fyrirbærið. „Þetta er eins konar guðsgjöf inni í tilverunni þegar maður sér tunglið alveg hylja sólina,“ sagði hann við BBC. Bretar eru líka spenntir fyrir því sem framundan er þó að þeir sjái aðeins deildarmyrkva því aðeins 90% af sólinni verða hulin. Verslunareigandi í Lundúnum segist hafa selt 26 þúsund sólmyrkvagleraugu á þremur dögum. Deildarmyrkvinn hefst þar skömmu eftir að hann hefst hér á landi. Það er líka spenna á Norðurlöndunum. Í Danmörku verður yfir 85% af sólinni hulinn og stærri myrkvi mun ekki eiga sér stað þar fyrr en eftir rúm 20 ár. Meira hefur ekki verið hulið af sólinni þar síðan árið 1954. Danska ríkisútvarpið hefur keyrt upp stemninguna og hefur meðal annars hvatt fólk til að senda af sér sólmyrkvasjálfu, og eiga möguleika á að vinna kaffibolla með merki miðilsins. Þar hefur líka verið skortur á sólmyrkvagleraugum og það haft á orði að þau séu nú vinsælli en PlayStation, Iphone 17 og Airpods. Í Noregi verður 80-85% af sólinni hulin, og 90% á Svalbarða. VG hefur eftir Anne Mette Sannes stjörnufræðingi að það gætu liðið 30 þúsund ár þangað til slíkt sést aftur.