Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hinn 16 ára Hjalti Kristján sló vallarmet á Íslandsmótinu

  • What: A 16-year-old golfer set a record at the Icelandic championship
  • Impact: Local sports event coverage
Read Full Article →

Hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason sló vallarmetið á Korpúlfsstaðavelli í dag. Hann fór þriðja hringinn á Íslandsmótinu í golfi á 65 höggum, sem er sex undir pari vallarins. Völlurinn fór nýverið í gegnum breytingar og hefur verið lengdur. Hjalti fór í gegnum þriðja hringinn í dag án þess að fá einn skolla. Hann fékk auk þess fjóra fugla og einn örn. Hjalti klifraði sig upp í þriðja sæti mótsins og er á þremur höggum undir pari eftir þrjá hringi. Hann ræsir á morgun út í holli með Íslandsmeistaranum Dagbjarti Sigurbrandssyni og Aroni Emil Gunnarssyni. Hjalti Kristján leikur með Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Degi áður hafði hinn fimmtán ára gamli Halldór Jóhannsson úr Golfklúbbnum Keili slegið vallarmetið. Hann fór annan hringinn á 67 höggum eða fjórum höggum undir pari.

Share this article