- What: Wildfires force 20,000 people to evacuate their homes
- Impact: 95 square kilometers of forest burned in British Columbia
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Minnst 20 þúsund hafa flúið heimili sín vegna skógarelda í Bresku Kólumbíu Markús Þ. Þórhallsson Hluti þjóðvegar 97 í Bresku Kólumbíu er lokaður. AP/The Canadian Press / Gary Nylander Að minnsta kosti 20 þúsund hafa neyðst til að flýja heimili sín í kanadíska fylkinu Bresku Kólumbíu af völdum skógarelda. David Eby, forsætisráðherra fylkisins, hefur lýst yfir neyðarástandi um gjörvallt fylkið. Samkvæmt upplýsingum eftirlitsstofnunar með gróðureldum þekur skógareldurinn meira en 95 ferkílómetra skóglendis í tveimur héruðum. Skógareldar hafa geisað víða um Kanada það sem af er sumri. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti FIFA fordæmir það sem það kallar skipulagða og viðvarandi ófrægingarherferð gegn forseta þess Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur gefið út yfirlýsingu þar sem það fordæmir skipulagða ófrægingarherferð gegn stjórn þess og ekki síst forsetanum Gianni Infantino. Það segir nýlegan fréttaflutning um hann fullan af rangfærslum og tilbúningi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Eldflaug hæfði olíuskip á siglingu um Hormússund Markús Þ. Þórhallsson Skip á Hormússundi. AP/ISNA / Amirhosein Khorgooi Eldflaug hæfði olíuflutningaskip á siglingu um Hormússund undan ströndum Óman í dag. Samkvæmt færslu bresku siglingamálastofnunarinnar UKTMO á X kviknaði eldur um borð sem greiðlega gekk að slökkva. Reuters segir skipið vera í eigu ríkisolíufélags Sameinuðu arabísku furstadæmanna, sem segir flauginni hafa verið skotið frá Íran. Írönsk stjórnvöld hafa ekki enn tjáð sig um atburðinn. Þau eiga í viðræðum við stjórnvöld í Óman um opnun Hormússunds, sem sagðar eru jákvæðar og uppbyggilegar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Popptónlist Fullkomna laglínan sem heyrist út um allt Leyndardómur hinnar fullkomnu laglínu hefur verið afhjúpaður. Laglínan heyrist í tugum vinsælla dægurlaga. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Golf Hinn 16 ára Hjalti Kristján sló vallarmet á Íslandsmótinu Hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason sló vallarmetið á Korpúlfsstaðavelli. Hann fór þriðja hringinn á Íslandsmótinu í golfi á 65 höggum, sex undir pari. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínumenn segjast alls ekki hafa beint dróna vísvitandi að Búlgaríu Stjórnvöld í Úkraínu segja að dróna sem sprakk við landamæri Búlgaríu og Rúmeníu hafi alls ekki verið vísvitandi beint þangað. Búlgarar segja allt benda til að það sé satt. Utanríkisráðuneyti Búlgaríu hefur boðað sendiherra Úkraínu á mánudag. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maður slasaður eftir spark frá hesti Björgvin Brynjarsson Alvarlegt slys varð austur af Kirkjubæjarklaustri í kvöld þar sem maður varð fyrir sparki frá hesti og hlaut af því höfuðáverka. Vísir greinir fyrst frá. Útkall vegna slyssins barst um klukkan korter yfir sjö í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flytur manninn til Reykjavíkur. Áætlað er að þyrlan lendi í Reykjavík um korter yfir níu, samkvæmt Einari Valssyni, aðgerðarstjóra hjá Landhelgisgæslunni. Ekki liggur fyrir hversu alvarlegir áverkarnir eru. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Við höfum alltaf verið hérna og við munum halda áfram að vera hérna“ Á bilinu áttatíu til hundrað þúsund manns fögnuðu fjölbreytileikanum í Gleðigöngunni í Reykjavík í dag. Gestir segja gönguna sjaldan hafa verið mikilvægari. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Ungir karlmenn stækkandi hluti þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ Ungt fólk, sérstaklega karlmenn, er sífellt stærri hluti þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir stöðuna þá sömu á landsvísu og að ráðast þurfi á rót vandans. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Golf Hvernig fór þetta ekki ofan í? Mosfellingurinn efnilegi Kristján Karl Guðjónsson átti eitt af höggum dagsins er hann átti innáhögg á 16. holu. Það er í raun með hreinum ólíkindum að boltinn hafi ekki farið ofan í, en hann stoppaði hreinlega á holubarminum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Úlfur leikur lausum hala í íbúðahverfi á Jótlandi Úlfur beraði tennur fyrir hlaupara í Norður-Jótlandi í gær og annar leitaði ítrekað í börn á leik í einkagörðum á Vestur-Jótlandi. Þar hefur eftirlitssvæði verið búið til þar sem Umhverfisstofnun og einkaaðilar með leyfi mega skjóta úlfinn. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Heljarinnar stemning á Hinsegin dögum Á bilinu 80 til 100 þúsund manns fögnuðu fjölbreytileikanum í Gleðigöngunni í Reykjavík í dag. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Augljóslega eitthvað sem við þurfum að ræða eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna“ Traust og trúverðugleiki eru númer eitt, tvö og þrjú þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB segir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar. Bagalegt sé að ekki hafi náðst að fylla upp í glufur í lögum sem ÖSE hefur bent á. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínuher segist ekki hafa beint dróna að Búlgaríu af ásettu ráði Dróni af tegund sem Úkraínuher notar mikið hafnaði í Búlgaríu. Þetta segja búlgörsk stjórnvöld. Úkraínumenn segjast ekki hafa beint neinum vopnum að landinu af ásettu ráði. Varnarmálaráðherra Búlgaríu og sendiherra Úkraínu funda á mánudag. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Rútuvelta í Noregi – Vitni brutu sér leið inn með hamri Ellefu ferðamenn voru fluttir á sjúkrahús eftir að rúta valt í Noregi. Enginn þeirra er alvarlega slasaður. Vitni sem komu á slysstað þurftu að brjóta sér leið inn í rútuna með hamri til að aðstoða farþega. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Ísland í hlutverki annarra heima er hluti af bíótungumálinu Kvikmyndagerðarmaðurinn Jörri Arnars segir íslenskt landslag orðið hluta af bíótungumálinu þegar kemur að fantasíu og vísindaskáldskap. „Ef þú ætlar að hafa sci-fi þá kemstu varla upp með að hafa ekki smá Ísland.“ Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Baudenbacher sagðist hafa þegið boð Áfram Íslands Lögmannsstofa Carls Baudenbacher, fyrrv. forseta EFTA-dómstólsins, greindi sjálf frá því að hann hefði þegið fundarboð samtakanna Áfram Íslands. Skipuleggjendur segja fundinn þó ekki á vegum samtakanna heldur undirstofnunar HÍ. 8. ágúst 2026 kl. 15:30ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Stúlka sem hvarf á Jótlandi fannst í Ungverjalandi 15 ára stúlka sem hvarf á Jótlandi á þriðjudaginn fannst í Ungverjalandi. Lögregla segir þetta alvarlega frelsissviptingu og hefur krafist gæsluvarðhalds yfir hinum grunaða eða hinum grunuðu. Líklega ganga einhverjir gerendur í málinu enn lausir. 8. ágúst 2026 kl. 14:30ÍÞRÓTTIR Golf Golfvaktin: Dagbjartur með mikið forskot og háspenna kvennamegin Íslandsmeistararnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiða fyrir lokadag Íslandsmótsins í golfi. Dagbjartur kláraði hringinn á 69 höggum og er nú með sex högga forskot á -10 undir. Aron Emil Gunnarsson lék vel í dag og vann sig upp í 2. sæti og er á -4 undir. Guðrún Brá er með þriggja högga forskot eftir að hafa leikið á 73 höggum í dag. Hún er nú á einu höggi undir pari en Ragnhildur Kristinsdóttir og Elsa Maren Steinarsdóttir fylgja henni fast eftir Hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason sló vallarmetið á Korpúlfsstaðavelli. Hann fór þriðja hringinn á Íslandsmótinu í golfi á 65 höggum, sex undir pari. Hér má sjá viðtöl og helstu tilþrif en við fylgdumst með gangi mála í lifandi fréttavakt. Útsending frá lokadegi mótsins hefst 14:30 á morgun. SAMANTEKT 8. ágúst 2026 kl. 14:14INNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf „Um að gera að taka ömmu“ á dragbröns í Austurbæ Stærsti dragbröns Íslandssögunnar var að líkindum haldinn í Austurbæ í dag. Dragdrottning segir að viðburðurinn sé fyrir alla, nema reyndar börn. 8. ágúst 2026 kl. 13:08INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Íslendingar gista sífellt minna á hótelum Íslendingar gista sífellt minna á hótelum og gistiheimilum innanlands. Gistinóttunum hefur fækkað um meira en fjórðung. Kostnaður er hugsanleg skýring, segir ferðamálastjóri, eða covid-áhrif að ganga til baka. 8. ágúst 2026 kl. 12:45INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Ég vil að byggðin fái að haldast umhverfis landið og að við séum ekki að mergsjúga þá“ Starfandi innviðaráðherra segir stefnt að því að tryggja strandveiðisjómönnum stöðugleika til framtíðar. Þeir hafa gagnrýnt óvissu í greininni og misskiptingu milli landshluta. 8. ágúst 2026 kl. 12:11INNLENDAR FRÉTTIR Grænland Trump stefnir enn á yfirráð yfir Grænlandi Donald Trump Bandaríkjaforseti ásælist enn Grænland, ef marka má ummæli hans í nýlegu viðtali. Það væri öruggt að veðja á yfirráð Bandaríkjamanna yfir Grænlandi áður en hann hættir sem forseti. 8. ágúst 2026 kl. 12:00ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Bandaríkjanna Todd Blanche er nýr dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Öldungadeildin staðfesti tilnefningu hans með eins atkvæðis mun. 8. ágúst 2026 kl. 10:28INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Sakar rektor um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar Fyrrverandi prófessorar við HÍ saka skólann um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og ESB með því að hlutast til um útleigu á hátíðarsal skólans. 8. ágúst 2026 kl. 9:14INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Löng röð í öryggisleit í Leifsstöð Löng röð myndaðist í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli í morgun. Staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia skýrir tafirnar með sumartraffík og færri tengifarþegum. Hann segir röðina vera að leysast. 8. ágúst 2026 kl. 8:18INNLENDAR FRÉTTIR Bókmenntir Lesendum hljóðbóka fjölgar en tekjurnar standa á sér Vinsældir hljóðbóka fara vaxandi, bæði hjá nýjum lesendum og þeim sem áður keyptu pappírsbækur. Formaður Rithöfundasambandsins bindur vonir við að aukin samkeppni á markaði geti rétt hlut höfunda. 8. ágúst 2026 kl. 8:05INNLENDAR FRÉTTIR Veður Léttir til þegar líður á daginn sunnan- og vestanlands Á norða