Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Minnst 20 látnir eftir jarðskjálfta í Kólumbíu

Read Full Article →

Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 varð í Kólumbíu í dag. Upptök hans voru í vesturhluta landsins. Fyrstu fregnir herma að byggingar í höfuðborginni Bógóta og í Quito höfuðborg Ekvador hefðu hrist og skemmst. Skjálftinn fannst einnig í Panama. Minnst 18 fórust í borginni Pereira í Kólumbíu af völdum skjálftans, að sögn borgarstjóra borgarinnar. Þá fórust minnst tveir í borginni Manizales að sögn borgarstjórans þar. Þá skemmdust minnst 20 byggingar í borginni Cali og hefur fólk lokast inn í rústum húsa. Byggingar í Bógóta hafa verið rýmdar vegna skjálftans en ekki hefur verið tilkynnt um skemmdir þar. Nubia Carolina Córdoba-Curi héraðsstjóri í Chocó-héraði, þar sem skjálftinn átti upptök sín, segir á X að í borginni Quibdó hafi orðið slys á fólki og byggingar skemmst mikið. Um 130 þúsund manns búa í borginni. Verið sé að meta tjónið. Sex flugvöllum hefur verið lokað vegna skjálftans og eftirskjálfta sem hafa fylgt. Abelardo De La Espriella forseti Kólumbíu, sem tók við embætti fyrir nokkrum dögum, segir að ríkisstjórnin muni koma þeim til hjálpar sem eiga um sárt að binda. Hann boðar komu sína til Pereira fljótlega. Fréttin var uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og viðbrögð. Áfram verður uppfætt eftir því sem nýjar upplýsingar berast.

Share this article