Innlent | mbl | 9.8.2026 | 14:11 „Snýst ekki um það hver er að tala“ Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands. mbl.is/Eyþór Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Óska tafarlaust eftir svörum rektors Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð ESB mun semja fyrir okkur » Fleiri tengdar fréttir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir dæmi um að viðburðir hafi verið haldnir af stofnunum innan háskólans þar sem komið hafi fram pólitískir aðilar. „En það snýst ekki um það hver er að tala, þetta snýst um það hver er að reyna að bóka þennan sal,“ segir Silja við mbl.is og á við hátíðarsal Háskóla Íslands. Greint var frá því í gær að Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, sem báðir eru fyrrverandi prófessorar við Háskóla Íslands, hefðu sent Silju Báru Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, bréf þar sem þeir krefjast þess að Háskólinn standi við leigusamning sem gerður var við Ragnar á dögunum vegna fyrirhugaðs fyrirlesturs um Ísland og Evrópusambandið. Frétt af mbl.is Óska tafarlaust eftir svörum rektors „Ekki hægt að túlka það öðruvísi“ Silja Bára tók þá ákvörðun að fyrirlesturinn yrði ekki haldinn í sal skólans þar sem hann var álitinn of pólitískur, en Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og einn helsti sérfræðingur heims í EES-samningnum og Evrópurétti, átti að halda erindi á fundinum. „Auglýsingarnar hafa verið þannig að Áfram Ísland standi fyrir þessu. Það er ekkert hægt að túlka það öðruvísi þegar auglýsingar eru birtar á þennan hátt. Það snýst ekkert um það hver er að fara að vera á sviðinu,“ segir Silja. Hannes og Ragnar sögðu í bréfi sínu til rektors að Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál stæði fyrir fundinum en ekki Áfram Ísland, eins og Silja Bára vill meina. „Hinn 6. ágúst birtist auglýsing um hinn fræðilega fyrirlestur dr. Baudenbachers í Morgunblaðinu. Var hún í nafni Rannsóknarseturs um stjórnmál og efnahagsmál, en jafnframt birtust í auglýsingunni merki tveggja aðila sem vildu vekja athygli á fyrirlestri dr. Baudenbachers, Áfram Ísland og Almenna bókafélagið,“ segir í bréfinu. Frétt af mbl.is Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Metur auglýsinguna eins og hún birtist í blaðinu Spurð hvort hún telji því Hannes og Ragnar fara með rangt mál í bréfinu varðandi það hver standi raunverulega fyrir fundinum segir Silja: „Ég er bara að meta þessa auglýsingu eins og hún birtist í Morgunblaðinu og við tókum afstöðu til þessa fundar á grundvelli hennar.“ Í bréfinu segir að oft hafi tíðkast að samtök og aðilar utan Háskólans hafi átt samstarf við stofnanir innan Háskólans um fundi og tekið að sér að vekja athygli á þeim. Aldrei hafi, Hannesi og Ragnari vitanlega, verið amast við því og nefna þeir nokkur dæmi. „Ég kannast ekki við að nokkur hafi gert það annar en einhverjar hugveitur sem Hannes Hólmsteinn heldur úti. Dæmi sem hann tók í pósti sem ég sá frá honum voru allt viðburðir sem rannsóknarsetur sem hann stendur fyrir auglýsa viðburði sem eru haldnir innan háskólans. Það eru ekki ótengdir aðilar úti í bæ sem taka það upp hjá sér að auglýsa viðburði sem aðrir standa fyrir,“ segir Silja. Þykir ekki í lagi að aðilar úti í bæ auglýsi viðburði sem þessa? „Jú, en í auglýsingunni eru „lógó“ tveggja aðila og undir þeim stendur „í samstarfi við Rannsóknarsetur“. Það er ekki að Rannsóknarsetrið sé að standa fyrir viðburðinum að mínu mati. Það veldur því að við ákveðum að afturkalla þessa bókun.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Óska tafarlaust eftir svörum rektors Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð ESB mun semja fyrir okkur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Snýst ekki um það hver er að tala“ Jakob á skotskónum í Danmörku Útileguklassík á sterum: „Óhemju gott!“ „Ég hvet fólk alltaf til þess að taka smá sénsa“ Myndir: Stuð og stemning í Gleðigöngunni Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afurðaverðið fellur Fjöldi líkamsárása í borginni Bandero ekki lengur haldið á lokuðu svæði „Snýst ekki um það hver er að tala“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fjöldi líkamsárása í borginni Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Eftirspurnin aukist gríðarlega Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Ók ölvaður um á Hopp-bíl Norskt varðskip á Akureyri Urðu ástfangin af textunum Afleiðingar valdaafsals í landbúnaði „Við erum líka trukkadræverar og sjómenn“ „Þá verða fleiri svona árekstrar á milli fólks“ Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Ég er ekkert að fegra lífið Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Eftirspurnin aukist gríðarlega Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Nýjast á mbl.is » „Snýst ekki um það hver er að tala“ Jakob á skotskónum í Danmörku Útileguklassík á sterum: „Óhemju gott!“ „Ég hvet fólk alltaf til þess að taka smá sénsa“ Myndir: Stuð og stemning í Gleðigöngunni Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brottvísanir skipverja hafnar Ég er ekkert að fegra lífið Afleiðingar valdaafsals í landbúnaði Bandero ekki lengur haldið á lokuðu svæði Mest lesið Í gær Í vikunni Fjöldi líkamsárása í borginni Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Eftirspurnin aukist gríðarlega Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Ók ölvaður um á Hopp-bíl Norskt varðskip á Akureyri Urðu ástfangin af textunum Afleiðingar valdaafsals í landbúnaði „Við erum líka trukkadræverar og sjómenn“ „Þá verða fleiri svona árekstrar á milli fólks“ Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Ég er ekkert að fegra lífið Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Eftirspurnin aukist gríðarlega Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra