Lífeyrissjóðir voru umsvifamiklir í viðskiptum með íslensk hlutabréf í júlí. Mest var selt í Arion banka, Festi og Íslandsbanka. Íslenskir lífeyrissjóðir seldu hlutabréf fyrir um 8,1 milljarð króna umfram kaup í júlí, samkvæmt mati greiningarfyrirtækisins Akkurs. Greiningin byggist á upplýsingum sem sjóðirnir birta sjálfir um tíu stærstu eignir sínar og stærð sjóðanna í lok hvers mánaðar. Gildi skar sig úr en nettósala sjóðsins nam 7.891 milljón króna. Þar á eftir kom Stapi lífeyrissjóður sem seldi fyrir rúman milljarð umfram kaup. Akkur áætlar að nettósala sjóðanna í Arion banka hafi verið 4.820 milljónir króna. Þarf af seldi Gildi hlutabréf í félaginu fyrir um 3,4 milljarða króna. Nettósala í Festi og Íslandsbanka var um 1,7 og 1,2 milljarðar en í þeim viðskiptum fór mest fyrir Gildi sem seldi fyrir tæpa 2,2 milljarða í báðum félögum. Í síðasta mánuði greindi Viðskiptablaðið frá umfangsmiklum viðskiptum með bréf Arion banka sem talið var að Gildi stæði að baki. Heimildir herma einnig að Gildi hafi leitast við að draga úr vægi innlendra eigna og auka vægi erlendra á móti. Sjóðurinn kynnti til að mynda nýja séreignaleið sem býður upp á 100% erlent eignasafn. Sjá einnig Gildi sagt á söluhliðinni í milljarðaviðskiptum Minna fór fyrir kaupum lífeyrissjóða en stærstu kaupin voru kaup Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna í Íslandsbanka fyrir 710 milljónir króna. Endurkaup félaga á eigin hlutabréfum voru áfram fyrirferðarmest á kauphlið markaðarins en Íslandsbanki, Arion banki, Brim, Hagar, Festi, Síminn og Skagi keyptu öll eigin bréf í júlí. Íslandsbanki og Arion banki keyptu eigin bréf fyrir meira en 2 milljarða ef miðað er við magnvegið meðalverð mánaðarins en Brim keypti fyrir tæpa 2 milljarða. Kaup annarra félaga voru minni en 400 milljónir.