Rétt upp úr klukkan fimm í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá litlum fiskibát sem var staddur út af Hlöðuvík á Hornströndum með ósk um að fá aðstoð við að komast í land. Einhvers konar bilun hafði komið upp í bátnum sem gerði skipstjóra ókleift að sigla hraðar en á einnar til tveggja sjómílna hraða. Áhöfn Kobba Láka til aðstoðar Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að áhafnir björgunarskipsins Kobba Láka í Bolungarvík og Guðmundar í Tungu á Ísafirði hafi verið boðaðar út en þegar Kobbi Láka hafði verið mannaður hafi áhöfn Guðmundar í Tungu afturkölluð. Róleg sigling til baka til Bolungarvíkur „Kobbi Láka hélt úr höfn upp úr hálf sex í morgun og var kominn að bátnum um klukkustund síðar. Við tók róleg sigling til baka til Bolungarvíkur, þangað sem skipin voru að koma nú rétt upp úr hálf tíu,“ segir í tilkynningunni.