Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vöruviðskipti óhagstæð um 40 milljarða í júlí

Read Full Article →

Fluttar voru út vörur fyrir 86,5 milljarða króna í júlí og inn fyrir 127,1 milljarð samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar . Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 40,6 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 44 milljarða króna í júlí á síðasta ári á gengi hvors árs fyrir sig. Á vef Hagstofunnar segir jafnframt að vöruskiptajöfnuðurinn í nýliðnum júlí hafi verið 3,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Jöfnuðurinn á síðustu tólf mánuðum hafi verið óhagstæður um 441,9 milljarða króna sem er 63 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili árið á undan. Sjá einnig Vöruviðskipti óhagstæð um 65 milljarða „Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 7% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 8% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr,“ segir í greiningu. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingarvörum en einnig var samdráttur í innflutningi á flutningatækjum, eldsneyti og smurolíum. Mest var aukning í innflutningi á neysluvörum og mat- og drykkjarvörum.

Share this article