Vöruviðskipti voru óhagstæð um 40,6 milljarða í síðasta mánuði. Það er 3,5 milljörðum betri niðurstaða en í sama mánuði í fyrra. Verðmæti útflutnings nam 86,5 milljörðum króna í mánuðinum en innflutnings 127,1 milljarði. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum frá Hagstofunni. Síðustu tólf mánuði er samanlagður vöruskiptahalli 441,9 milljarðar króna. Það er 63 milljörðum króna minni halli en mánuðina tólf þar á undan. Mikil aukning í álútflutningi milli ára Í síðasta mánuði jókst verðmæti vöruútflutnings um 14 milljarða frá fyrra ári. Það er fyrst og fremst vegna aukningar í útflutningi á iðnaðarvörum, sérstaklega áli. Útflutningsverðmæti iðnaðarvara jókst um 34% á milli ára. Verðmæti vöruútflutnings hefur dregist lítillega saman síðasta árið. Síðustu tólf mánuði er samanlagt verðmæti útflutnings 949,5 milljarðar króna, 3,2 milljörðum minna en mánuðina tólf þar á undan. 49% alls vöruútflutnings voru iðnaðarvörur. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 8% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Talsverð aukning í innflutningi á mat og drykk Vöruinnflutningur í júlí jókst um 10,6 milljarða miðað við sama mánuð í fyrra. Aukningin er aðallega tilkomin vegna aukins innflutnings á fjárfestingavörum. Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 1.391,4 milljarðar króna og dróst saman um 66,2 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabilið á undan eða um 5%. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum en einnig var samdráttur í innflutningi á flutningatækjum, eldsneyti og smurolíum. Mest var aukning í innflutningi á neysluvörum og mat- og drykkjarvörum.