Kasta þurfti yfir 78 metra til að vera öruggur og keppendum var skipt í tvo riðla. Hilmar var í A-riðli og kastaði 73,13 m í fyrsta kasti, 73,44 í öðru en náði svo sínu lengsta kasti í þriðju og síðustu tilraun sinni þegar hann þrumaði sleggjunni 76,63 m. Hann endaði í 3. sæti A-riðils og því þurfa tíu keppendur í B-riðlinum að kasta lengra til að Hilmar missi af úrslitunum. Það verður að teljast hæpið. „Þetta dugar mér í úrslit, ég er þriðji eins og er. Reyndar er getustigið hérna mjög hátt í keppninni með topp 12, en ég held að þetta dugi,“ sagði Hilmar Örn við RÚV eftir að keppni í A-riðli forkeppninnar í sleggjukasti karla á Evrópumótinu í frjálsíþróttum var lokið í Birmingham í dag. Keppni í B-riðli var þá ekki hafin en Hilmar var nokkuð öruggur um að þriðja kastið hans í dag myndi fleyta honum inn í úrslitin annað kvöld. Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson gerði vel í forkeppni sleggjukasts karla á EM í frjálsíþróttum í dag. Hann keppir að óbreyttu í úrslitum annað kvöld. „Upphitunin var allt í lagi, en hringurinn var svolítið sleipur í byrjun því ég held að það hafi verið að vesenast eitthvað í honum bara í gærkvöld, eitthvað að endursteypa, þannig hann var smá sleipur. Ég þurfti því aðeins að stilla mig inn á það. Upphitunarköstin gengu þokkalega vel þannig ég vissi að ég hefði kraftinn í dag. Svo var ég ekki alveg ánægður með það hvernig ég setti mig inn í fyrsta kastið, en ánægður að fá gott og gilt kast. Annað kastið var aðeins betra en flaug ekki neitt, en svo nennti ég ekki að skilja þetta eftir í höndum einhverra annarra, þannig ég negldi á þetta í þriðja og síðasta kastinu.“ Allt samkvæmt plani En hvernig er tilfinningin að koma út úr keppninni í dag með fínt þriðja kast? „Hún er góð og þetta var bara eftir plani og það sem ég ætlaði að gera. Ég vissi að ef ég myndi framkvæma mitt þá færi þetta svona. Þannig þetta er bara gott,“ sagði Hilmar við RÚV í dag. Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson gerði vel í forkeppni sleggjukasts karla á EM í frjálsíþróttum í dag. Hann keppir að óbreyttu í úrslitum annað kvöld. En þarf Hilmar núna að setjast niður og setja sér ný markmið fyrir úrslitin, eða hafði hann reiknað með því í undirbúningnum að hann færi í úrslit og að forkeppnin í dag væri bara einn áfangi í markmiðum mótsins? „Ég veit alveg hvað ég er að fara að gera í úrslitunum hérna annað kvöld. Núna fer ég aðeins yfir stöðuna bara með þjálfaranum mínum á eftir, við tökum smá æfingu og spáum í spilin. En svo verð ég bara klár fyrir morgundaginn.“ Vill gera betur en síðast þegar hann fór í úrslit En hvaða væntingar hefur Hilmar fyrir úrslitin annað kvöld? „Ég veit það nú ekki, en ég vil allavega gera betur en þegar ég komst í úrslit á EM 2022 í München. Það væri númer 1, 2 og 3. Eitthvað svipað og í dag myndi duga mér nokkuð þokkalega. Þannig vonandi get ég stimplað mig fyrr inn í úrslitunum á morgun og þá er allt opið.“ Alls komast tólf sleggjukastarar í úrslit og Hilmar endaði í 12. sæti á EM fyrir fjórum árum. Allt fyrir ofan 12. sæti væri því bæting hjá honum. „Já, við getum alveg sagt að það sé fyrsta markmið að komast ofar en það,“ sagði Hilmar sem horfir þó lengra. „Ég á alveg heima meðal átta efstu og ég sé það alveg eftir keppnina í dag. En þetta verður bara að koma í ljós á morgun. Ég verð allavega í stuði.“ Sýnt verður beint frá úrslitahluta sleggjukasts karla á EM í frjálsíþróttum á RÚV 2 annað kvöld. Keppnin hjá Hilmari hefst klukkan 18:10 en bein útsending RÚV 2 klukkan 18:00.