Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frábær staðfesting á vinnu síðustu ára

Read Full Article →

Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson var vitanlega í skýjunum eftir að hafa endað í 7. sæti á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham í kvöld. Lengsta kast Hilmars var 77,26 metrar. Hann átti þrjú gild köst, en hin mældust 74,38 metrar í fyrstu tilraun og svo 76,89 metrar í fjórða kasti. „Ég er ótrúlega ánægður með árangurinn og fyrirfram hefði ég orðið mjög sáttur með þetta svona, en mér fannst ég samt skilja aðeins eftir. Ég held ekki að það dragi neitt úr árangrinum en fyrstu viðbrögðin eru þó þau að ég hefði getað gert aðeins betur,“ sagði Hilmar Örn við RÚV í Birmingham í kvöld að loknum úrslitunum. Hilmar Örn Jónsson varð sjöundi í sleggjukasti á EM með 77,26 metra kasti. Þetta er besti árangur Íslendings á EM utanhúss í 24 ár. Hilmar segir árangurinn staðfestingu á níu ára vinnu. Hilmar hafði einu sinni áður komist í úrslit á stórmóti þegar hann lauk keppni í 12. sæti á EM í München árið 2022. Aðeins átta efstu eftir þrjár umferðir fá þrjú köst til viðbótar og í kvöld var Hilmar í þeim flokki og því nýjum áfanga náð. „Í München endaði ég tólfti og ég var staðráðinn í því að endurtaka það ekki. Það var bara ótrúlega gaman að vera meðal átta bestu. Það var líka mjög hátt getustigið í þeim hópi hér í kvöld, svona djúpt eins og maður segir.“ Hafði í sjálfu sér engar áhyggjur En hvert var planið hjá Hilmari fyrir úrslitin í kvöld? „Planið var bara að framkvæma mín köst eins og ég hef gert í allt sumar, í allan vetur og á öllum æfingum. Það var bara að endurtaka það, því þá myndu vegalengdirnar falla fyrir mig. Ég hafði í sjálfu sér engar áhyggjur af því. Mér fannst ég bara vera þokkalega yfirvegaður, mér leið þokkalega inni á vellinum og já, það gekk vel.“ Hilmar Örn Jónsson varð sjöundi í sleggjukasti á EM með 77,26 metra kasti. Þetta er besti árangur Íslendings á EM utanhúss í 24 ár. Hilmar segir árangurinn staðfestingu á níu ára vinnu. En hvernig upplifði Hilmar kastseríuna? „Ég trúði því eiginlega ekki hvað fyrsta kastið fór langt. Þá fékk ég aukið sjálfstraust. Mér leið nefnilega í upphituninni eins og ég væri ekki alveg að hitta á þetta. En fyrsta kastið flaug svo þokkalega langt sem gaf mér byr. Annað kastið, sem endaði svo sem mitt lengsta í kvöld, var alveg þokkalegt líka, en samt var ég ekki alveg ánægður með hvernig það tókst til. Svo var ég bara að reyna að bæta í og þegar maður ætlar sér að hitta á sitt allra allra besta þá þarf lítið til að köstin misheppnist, sem varð raunin. Það féll ekki núna að ná því besta út úr sér en ég var mjög nálægt því.“ Miklu stressaðri í forkeppninni Hilmar upplifði þó ekkert spennufall eftir keppnina. „Ég er nú bara frekar rólegur núna. Í gær var ég mjög stressaður fyrir keppninni og fékk mikið adrenalín í forkeppninni. En núna í úrslitunum var ég þokkalega yfirvegaður og mér leið bara vel.“ Sjöunda sætið sem Hilmar náði í kvöld er besti árangur Íslendings í 24 ár á EM utanhúss í frjálsíþróttum eða síðan Jón Arnar Magnússon varð þá fjórði í tugþraut í München árið 2002. En hvaða þýðingu hefur það fyrir Hilmar að hafa náð sínum besta árangri á stórmóti í kvöld? Níu ára ferli að komast á þennan stað „Það er auðvitað bara frábær kvittun fyrir því sem ég hef verið að gera undanfarin ár. Fyrsta stórmótið mitt var árið 2017, þannig að þetta er níu ára vinna og ótrúlega sætt að fá einhverja kvittun fyrir því að ferlið sé að virka. En svo þarf maður bara að bæta í, ég á nóg eftir.“ Hilmar gerði breytingar á sínu lífi á síðasta ári og sú áhætta borgaði sig. „Ég flutti með fjölskylduna til Svíþjóðar fyrir einu og hálfu ári síðan og kærastan mín var þá ólétt. Það var auðvitað nokkur áhætta og ég átti ekkert sérstakt tímabil í fyrra. En ég trúði samt á þetta og hélt áfram og það hefur gengið ótrúlega vel, og við fjölskyldan erum ánægð. Það er svo ótrúlega sætt að fá eitthvað út úr því.“ Það er líklega talsvert mikið sem Hilmar getur tekið með sér út úr þessu Evrópumóti inn í næstu ár. Heimsmeistaramótið í Beijing í Kína verður í september á næsta ári og svo er annað Evrópumót eftir tvö ár og sama sumar Ólympíuleikar í Los Angeles. Hilmar á enn eftir að keppa á Ólympíuleikum þó að hann hafi verið nálægt því að komast inn. Ætlar sér á Ólympíuleikana 34 ára „Já, ég á Ólympíuleikana enn þá eftir og ég verð nú ekki nema 34 ára þegar næstu leikar verða. Þannig ég er mjög spenntur fyrir því. Ég held að það verði nú bara gaman að byggja á þessu Evrópumóti og ég er klárlega ekki búinn að segja mitt síðasta. Það verður bara ótrúlega gaman að byggja á einhverju jákvæðu frekar en að vera alltaf að grafa sig út úr einhverju neikvæðu,“ sagði Hilmar. En þó að hann verði orðinn 34 ára eftir tvö ár þegar kemur að Ólympíuleikunum þá er það nú ekkert endilega of hár aldur fyrir sleggjukastara. „Nei, það voru nú einhverjir eldri en ég sem enduðu fyrir ofan mig í dag. Þannig að ég á nóg eftir og græði bara á þessu fyrir næstu ár.“ Veiði næst á dagskrá Fram undan hjá Hilmari er væntanlega hvíld, því hann hafði ekkert spáð neitt í framhaldinu. Einbeitingin hefur öll verið á EM í Birmingham. Hann er þó á leið í veiði þegar hann kemur aftur til Svíþjóðar þar sem hann býr. „Þeir kalla það kreftur, ég veit ekki hvað það kallast á íslensku. Kannski einhverjir krabbar,“ sagði Hilmar sem mun æfa eitthvað áfram án þess að vita hvort hann keppi á fleiri mótum í ár.

Share this article