Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vara við miklum umferðartöfum og biðja ferðalanga að smyrja nesti

Read Full Article →

Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum sem er birt á íslensku, ensku og pólsku . „Aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ og þrjár vettvangsstjórnir verða starfræktar á svæðinu til að tryggja skilvirka samhæfingu viðbragðsaðila og viðbrögð við mögulegum atvikum.“ Hægt að fylgjast með heima Lögreglan minnir íbúa á að almyrkvinn sést vel frá heimilum í þéttbýli á Reykjanesskaga. Því sé ekki nauðsynlegt að leggja í langferð til að njóta sjónarspilsins. „Sveitarfélögin á svæðinu hafa jafnframt komið upp safnstöðum á völdum stöðum þar sem fólk getur komið saman og fylgst með almyrkvanum. Upplýsingar um safnstaði, viðburði og bílastæði er að finna á heimasíðum sveitarfélaganna og á heimasíðu Markaðsstofu Reykjaness á visitreykjanes.is.“ Fólk er hvatt til að ganga eða hjóla ef það ætlar á safnstaði innan þéttbýlis, eftir því sem aðstæður leyfa. Með því megi draga úr umferðarálagi og auðvelda viðbragðsaðilum að komast leiðar sinnar ef á þarf. Biðja fólk að huga að nesti og öðrum nauðsynjum „Þeir sem hyggjast ferðast um Reykjanes eru hvattir til að leggja snemma af stað og gera ráð fyrir að dvelja lengur á áfangastað en venjulega jafnvel eftir að almyrkva lýkur. Búast má við miklu umferðarálagi og töfum á vegum á Reykjanesi.“ Fólk er hvatt til að huga vel að nesti og öðrum nauðsynjum, líkt og lyfjum. Lögreglan bendir á að óheimilt er að leggja bílum á vegum eða vegöxlum því það getur skapað hættu. Vegfarendur eru beðnir að nota aðeins skilgreind bílastæði og að virða merkingar, lokanir og fyrirmæli lögreglu og annarra viðbragðsaðila. Hvar verður einstefna og hvaða vegum verður lokað? Vegna umferðarálags verða sérstakar umferðartakmarkanir og einstefnur á ákveðnum leiðum. Garðskagavegur/Stafnesvegur (45) : Einstefna verður frá Nesvegi/Hafnarvegi með akstursstefnu til norðurs í átt að Sandgerði Vatnsleysustrandarvegur (420) : Einstefna frá Vogum með akstursstefnu til austurs í átt að Kúagerði. Bláalónsvegur : Lokað er fyrir umferð Skagabraut að Garðskagavita : Einstefna verður að Garðskaga og keyrt til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði Höskuldarvallarvegur : Lokað er fyrir umferð Flugfarþegar geri ráð fyrir umferðatöfum Fólk sem er á leið í flug frá Keflavíkurflugvelli er hvatt til að mæta tímanlega og gera ráð fyrir mögulegum töfum á leið sinni til flugvallarins. Sömuleiðis er fólk á leið til landsins beðið um að sýna þolinmæði á leið sinni frá Keflavíkurflugvelli. Gæti orðið mikið álag á GSM-kerfinu Lögreglan bendir á að mikið álag verði á GSM-kerfinu, sérstaklega þar sem margt fólk kemur saman utan þéttbýlis. Því geti reynst erfitt að ná símasambandi. Lögreglan minnir auk þess á varanúmer neyðarlínunnar sem er 599-0112. Þá beinir lögreglan þeim tilmælum til fólks að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er beint til sólar.

Share this article