Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hitamet hjá 900 milljónum manna

Read Full Article →

Hitamet halda áfram að falla. Hátt í helmingur þeirra sem upplifðu hitamet í júlí búa í norðanverðri Afríku. Gróðureldar loga enn í Evrópu. Júní og júlí voru heitustu mánuðirnir í vesturhluta Evrópu frá því mælingar hófust, samkvæmt nýrri skýrslu Kópernikusar, evrópsku loftslagsstofnunarinnar. Meðalhitinn mældist 21,62 gráður. Þar réðu mestu hitabylgjur í Evrópu og ekki síst myndun óvenju öflugs El Niño-veðurfyrirbæris í Kyrrahafi. Met var einnig slegið í hitastigi heimshafanna í júlí, annan mánuðinn í röð. Greining AFP-fréttastofunnar leiðir í ljós að hátt í 120 milljónir Evrópubúa upplifðu hitamet í júlí, einkum í vestanverðri álfunni. Hitinn í Frakklandi var 3,8 gráðum yfir meðaltali áranna 1991-2020. Veðurstofa Spánar hefur jafnframt gefið út að júlímánuður hafi jafnað met yfir heitasta mánuð frá upphafi mælinga árið 1961. Meðalhitinn var 25,7 gráður en sama hitastig mældist í júlí 2022. Jafnframt var þetta þurrasti júlímánuður sem mælst hefur þar í landi – úrkoman var aðeins 4,3 millimetrar sem er 26% af meðalúrkomu á þessum árstíma. Í greiningu AFP-fréttastofunnar kemur fram að 900 milljónir manna búi á svæðum þar sem hitamet í júlí var slegið. Flestir búa á Sahel-svæðinu, um 400 milljónir, og hitamet voru sett í tíu löndum innan þess. Í Súdan og Chad mældist meðalhitinn tveimur gráðum yfir meðalhita áranna 1981-2010. Auk loftslagsbreytinga er veðurfyrirbærið El Nino að hafa mikil áhrif, einkum í Mið-Ameríku og norðurhluta Suður-Ameríku. 110 milljónir manna upplifðu hitamet þar allt frá Mexíkó til norðurhluta Brasilíu. Í El Salvador, Níkaragúa og Hondúras voru sett hitamet bæði í júní og júlí. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna sagði í síðustu viku að Mið-Ameríka gæti upplifað skert matvælaöryggi vegna veðurfarsins. Þetta hefur skapað skilyrði fyrir mikla gróðurelda í Evrópu. Í Frakklandi brunnu hátt í 420 ferkílómetrar lands í Gironde-héraði sem jafngildir einni og hálfri Reykjavík. Á Spáni brunnu 440 ferkílómetrar lands í Avila-héraði. Það sér reyndar ekki enn fyrir endann á gróðureldum í Evrópu. Síðast í morgun brutust út nýir gróðureldar í Grikklandi nærri höfuðborginni Aþenu. Þá eru eldar í vesturhluta Kanada, sem kviknuðu á föstudaginn, að magnast og hafa þúsundir þurft að flýja heimili sín. Eldar loga einnig í Castellón á Spáni. Á sama tíma er barist við annars konar veður í Asíu. Fellibylurinn Dolphin hefur gert usla í Kína undanfarna daga og um milljón manns hafa flúið heimili sín. Styrkur bylsins fer nú minnkandi. Þá hafa miklar rigningar á Filippseyjum orsakað flóð og aurskriður sem hafa orðið 13 manns að bana.

Share this article