Sjálfboðaliðar og björgunarfólk í Kólumbíu vinnur nú hörðum höndum, í bókstaflegri merkingu, að því að leita að fólki í rústum húsa eftir jarðskjálftann sem reið yfir vesturhluta landsins í gær. Fólkið notast aðallega við fötur og eigin hendur til leitar. Staðfest er að minnst 132 fórust í skjálftanum og yfir 570 slösuðust. Flestir þeirra búa í borginni Pereira sem er í stærsta kaffiræktunarhéraði landsins. Borgin er aðeins 55 kílómetra frá miðju skjálftans. Rafmagnslaust varð í borginni við skjálftann og því fóru björgunaraðgerðir í gærkvöldi fram í svartamyrkri. Minnst 65 byggingar hrundu í borginni og er talið að fólk sé fast í 15 þeirra. Ástandið er einnig slæmt í fleiri borgum. Í Cali, sem er þriðja stærsta borg landsins, var komið á útgöngubanni yfir nóttina. Þar er einnig unnið að því að finna fólk undir húsarústum en þar hefur eingöngu verið hægt að notast við handaflið. Abelardo de la Espriella forseti Kólumbíu, sem sór embættiseið á föstudaginn, hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu og heitið samhæfðum björgunaraðgerðum. Hann staðfesti að um 1.500 heimili hefðu skemmst í skjálftanum. Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt um 15,5 milljóna dollara framlag til neyðaraðstoðar vegna skjálftanna. Yfirvöld í Ísrael, Mexíkó, Ekvador og Frakklandi hafa einnig boðið aðstoð.