Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýjar upplýsingar um ferðir farfugla sem verpa á Íslandi

  • What: New tracking technology reveals bird migration patterns
  • Impact: Scientists gain better understanding of bird behavior
Read Full Article →

Ný smátæki með staðsetningarbúnaði hafa gefið fuglafræðingum nýjar upplýsingar um ferðir og hegðun farfugla sem verpa á Íslandi. Stórt hafsvæði á miðju Atlantshafi hefur verið friðað. Komið hefur í ljós að krían staldrar þar við í stórum hópum á ferð sinni til suðurheimskautsins. Ævar Petersen fuglafræðingur hefur rannsakað farfugla áratugum saman, meðal annars í Flatey á Breiðafirði. Hann segir nýja búnaðinn hafa gjörbreytt öllum rannsóknum á fuglum síðustu árin. Nýr tækjabúnaður hefur gjörbreytt rannsóknum á ferðalögum farfugla. Meðal annars hefur komið í ljós að rita fer í fjögurra daga ferð frá Flatey til Grænlands til að afla fæðu fyrir unga sína. „Við höfum náð upplýsingum, meðal annars um kríuna sem að fer til Suðurheimskautsins og við höfum getað fylgst með ferðum þeirra alveg nákvæmlega á leiðinni þangað niður eftir. Við höfum líka sett þessi tæki á ritu og fleiri sjófugla, líka hrossagauka. Og þessi tæki hafa gert það að verkum að við vitum núna talsvert miklu meira um ferðir þessara fugla en áður,“ segir Ævar. Komið hefur í ljós að krían, sem flýgur 70-90 þúsund kílómetra á ári, staldrar við á miðju Atlantshafi á ferð sinni suður og er þar í æti í um 4 vikur áður en hún heldur áfram förinni til suðurheimskautsins. „Þetta var líklega fyrstu athuganir sem við höfum um þetta svæði,“ segir Ævar. Þær urðu til þess að svæðið hefur verið friðað. Sumar fljúga suður með ströndum Afríku en aðrar meðfram Suður-Ameríku. „Og svo koma þær saman við Veddelhafinu við Suðurheimskautið. En á þessum ferðalögum fer hún líka ansi langt til austurs og nánast alla leiðina til Ástralíu áður en hún snýr til Veddelhafsins aftur.“ Ritan fer hringinn í kring um landið í leit að sandsíli. Sumar fara norður fyrir en aðrar suðurfyrir Snæfellsnes en svo koma hóparnir saman á Austfjörðum. „Svo var það ein rita eitt árið sem tók sig til og fór frá ungunum í Hafnarey rétt við Flatey og flaug til Grænlands í fjóra sólarhringa áður en hún sneri aftur baka til unganna. Hún hafði þá farið 1600 kílómetra meðfram ísröndinni og lengst norður og svo aftur til baka. Og þetta er lengsta ferð sem vitað er um að rita hafi farið sem á unga,“ segir Ævar. „Hún safnar æti og svo ælir hún þessu í ungana þegar hún kemur til baka,“ segir Ævar. Skipta fjölskyldunni í tvennt til að auka lífslíkur Hrossagaukspör eignast 4 unga ef allt lukkast vel. Þau fara skipta ungunum á milli sín, karlinn tekur tvo og kerlingin tvo. Svo fara þau í sitt hvora áttina geta reyndar mæst einhvern tímann seinna þegar að ungarnir eru að dafna en þeir eru um það bil þrjár vikur með foreldrum sínum áður en að þeir verða sjálfstæðir og fleygir.“ Sjófuglapör eru oft saman alla ævina og verpa jafnvel í sömu holunni ár eftir ár. Og sumir geta orðið 60-70 ára gamlir eins og fýllinn. Óðinshanar haga sér öðruvísi en aðrir fuglar Segðu mér frá óðinshananum. „Óðinshaninn er merkilegur fugl að því leyti að karlfuglinn sér um allt sem snýr að búskapnum. Konan biðlar til karlsins og verpir eggjunum en svo er hún bara farin,“ segir Ævar. Karlinn sér um útungun og að koma ungunum á legg. Sumir óðinshanar fara svo til Perú yfir veturinn en aðrir til Arabíu. „Og karlinn hann kemur ekki fyrr en nokkrum vikum seinna. En fer á sömu slóðir engu að síður,“ segir Ævar.

Share this article