Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Helga Lára aðstoðar Hildi

Read Full Article →

Helga Lára Haarde hefur verið ráðin aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra og kemur til með að hefja störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum. Helga kemur frá ráðgjafafyrirtækinu Attentus þar sem hún hefur starfað undanfarin tæp tíu ár sem ráðgjafi í mannauðsmálum og klínískur sálfræðingur. Þar áður vann Helga hjá Maskínu við gerð viðhorfskannana. Hún er menntaður klínískur sálfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Þá hefur hún gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn gegnum árin og var kosningastjóri fyrir flokkinn í borgarstjórnarkosningunum síðastliðið vor.

Share this article