Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir ljóst að hún verði næsti borgarstjóri og er bjartsýn á að vel takist að mynda meirihluta. Hún ræðir þessa dagana við oddvita Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknar. Hún fundaði í dag með oddvitum flokkanna; Ara Edwald, Miðflokki, Björgu Magnúsdóttur, Viðreisn, og Einari Þorsteinssyni, Framsókn. Hún segist hins vegar ekki útiloka neina flokka en fyrr í dag sagðist hún ekki sjá fram á meirihlutaviðræður með öðrum flokkum. „Þetta eru þeir flokkar sem ég hef lýst yfir að sjá fyrir mér samstarf með, svona borgaralegu öflin í Reykjavík. Mér fannst eðlilegt að við settumst niður saman og ættum þetta samtal um framtíð borgarinnar og okkar samstarf, hvort sem það væri í meirihluta eða minnihluta,“ segir Hildur. Sameiginlegir fletir séu margir en Hildur segir ekki tímabært að segja til um hvernig samsetning meirihlutans verður. „Það eru alls konar mynstur í skoðun.“ Er gengið út frá því að þú verðir borgarstjóri? „Það held ég að liggi nokkuð ljóst fyrir og það er auðvitað eðlilegt að stærsti flokkurinn leiði nýjan meirihluta.“ Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins, sagði á dögunum að Sjálfstæðismenn væru litlir í sér og hræddir við vókið. Þess vegna hefði dregist að mynda meirihluta með Miðflokknum. Hildur vísar þessu á bug. „Við Sjálfstæðismenn erum auðvitað fullir sjálfstraust þessa dagana, ekki síst eftir frábærar niðurstöður í þessum kosningum.“ Viðtalið í heild er í spilaranum hér fyrir neðan. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hélt fund með oddvitum Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknar í dag. Hún sér fram á gott samstarf við flokkana, hvort sem þeir verði í meirihluta eða minnihluta, og segir liggja ljóst fyrir að hún verði borgarstjóri.