Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

KR vann Fram í sjö marka Reykjavíkurslag

Read Full Article →

18. umferð Bestu deildar karla lauk í kvöld með leik Fram og KR. Liðin voru í 2. og 3. sæti deildarinnar fyrir leikinn sem KR vann 5-2. KR-ingar byrjuðu með látum en Arnór Ingvi Traustason og Eiður Gauti Sæbjörnsson skoruðu tvö mörk á fyrstu sex mínútunum. Eiður Gauti bætti svo því þriðja við eftir hálftíma en Kennie Chopart minnkaði muninn fyrir Fram rétt fyrir hálfleik og staðan þá 3-1. KR-ingar gátu fagnað í kvöld.RÚV / Mummi Lú Kennie minnkaði enn frekar muninn á 61. mínútu en KR-ingar svöruðu með tveimur mörkum frá Ástbirni Þórðarsyni og Galdri Guðmundssyni, lokatölur 5-2. Með sigrinum hoppar KR upp fyrir Fram og er nú í 2. sæti með 39 stig, sex stigum minna en topplið Víkings.

Share this article