Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

KR náði fram hefndum gegn ÍA og upp í annað sæti

Read Full Article →

KR vann ÍA 5-1 í Bestu deild karla í fótbolta. Leikurinn var sá fyrsti í efri hluta úrslitakeppninnar. Vesturbæingar fara upp fyrir Fram í 2. sæti og eru sex stigum á eftir toppliði Víkinga, sem eiga þó leik til góða. Alls mættu 707 áhorfendur á leikinn, sem er 3.630 manns færri en mættu á síðasta heimaleik KR gegn Víkingum. Það er 80,52% fækkun milli leikja. Liðin mættust fyrir aðeins sjö dögum í síðasta leik hefðbundinnar deildarkeppni. Þar höfðu Skagamenn betur á Skipaskaga, 3-1. Þá unnu Stjarnan, Valur og FH í úrslitakeppni neðri hlutans. Þar með hafa Stjarnan og Valur skorið sig frá fjórum neðstu liðunum. FH sleit sig aðeins frá pakkanum fyrir neðan sig. KA og ÍBV eru enn í neðstu sætunum tveimur. Víkingur mætir Keflavík á morgun og Fram mætir Breiðabik. 3-0 yfir eftir 21 mínútu Leikurinn var afar opinn og liðin skiptust á að fá afbragðs færi fyrstu mínúturnar. Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós þegar Galdur Guðmundsson kláraði fyrirgjöf Orra Hrafns Kjartanssonar vel upp í þaknetið úr miðjum teignum. Markið kom á 6. mínútu. Sigurður Breki Kárason skaust upp miðjuna og bar boltann sjálfur inn á teiginn. Sigurður lagði svo boltann snyrtilega í vinstra hornið. Markið kom á 14. mínútu. Galdur skoraði þriðja markið er hann fylgdi eftir skoti Orra Hrafns. Árni í marki ÍA hafði varið vel en Galdur fylgdi eftir af harðfylgi á 21. mínútu. Skagamenn minnkuðu muninn er Jóhannes Vall fann Markús Pál Ellertsson í teignum á 69. mínútu. KR-ingar svöruðu þó fyrir sig skömmu síðar. Aron Sigurðarson sendi boltann fyrir á Luke Rae sem skallaði boltann á Eið Gauta Sigurbjörnsson. Eiður tók snertingu og hamraði boltann í netið á 71. mínútu. Luke Rae skoraði svo fimmta mark KR á 83. mínútu eftir að Ástbjörn Þórðarson sendi á hann. Markaskorarar úr hinum leikjunum Neðri hlutinn: Stjarnan 2 – 0 ÍBV 1-0 Benedikt V. Warén ('28 ) 2-0 Benedikt V. Warén ('32 ) FH 3 – 0 KA 1-0 Adolf Daði Birgisson ('27 ) 2-0 Tómas Orri Róbertsson ('53 ) 3-0 André Rømer ('57 , sjálfsmark) Valur 4 – 1 Þór 0-1 Sigfús Fannar Gunnarsson ('17 ) 1-1 Dagur Orri Garðarsson ('27 ) 2-1 Lúkas Logi Heimisson ('52 ) 3-1 Patrick Pedersen ('56 ) 4-1 Myles A Veldman ('82 ) KR 5 – 1 ÍA 1-0 Galdur Guðmundsson ('7 ) 2-0 Sigurður Breki Kárason ('14 ) 3-0 Galdur Guðmundsson ('21 ) 3-1 Markús Páll Ellertsson ('69 ) 4-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('71 ) 5-1 Luke Morgan Conrad Rae ('83 ) Úrslit og markaskorarar fengnir frá fotbolti.net

Share this article