Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjamenn leggja fram 15,5 milljóna dala aðstoð vegna hamfaranna

  • What: U.S. provides aid to Colombia after a 7.4 magnitude earthquake.
  • Impact: Hundreds reported dead or missing.
Read Full Article →

Bandaríkjastjórn heitir Kólumbíumönnum 15,5 milljóna dala aðstoð vegna mannskæðs jarðskjálfta af stærðinni 7,4 sem reið yfir vesturhluta landsins í gærmorgun. Á annað hundrað eru talin hafa týnt lífi í hamförunum og tugir ef ekki hundruð til viðbótar slösuðust. Leiðtogar fjölda ríkja hafa heitið liðsinni. „Við biðjum fyrir kólumbísku þjóðinni og erum reiðubúin að liðsinna Abelardo de la Espriella forseta af fremsta megni,“ segir í færslu bandaríska utanríkisráðneytisins á samfélagsmiðlinum X. Donald Trump Bandaríkjaforseti studdi forsetann í kosningabaráttunni. Á annað þúsund bygginga skemmdust eða hrundu til grunna. Forsetinn hefur lýst yfir neyðarástandi og óttast er að fleiri eigi eftir að finnast látnir þar sem enn er leitað að fólki undir rústum.

Share this article