Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íbúar á Flores-eyju sofa utandyra af ótta við eftirskjálfta

  • What: Earthquake hits Flores island in Indonesia
  • Impact: No impact on IT security
Read Full Article →

Fimmtíu, hið minnsta, hafa fundist látin eftir jarðskjálfta sem skók Flores-eyju í Indónesíu á föstudag. Fimm þúsund hafa flúið heimili sín og margir halda til utandyra af ótta við eftirskjálfta. Björgunarlið leitar enn í rústum húsa eftir skjálftann, sem var 7,7 að stærð. Talið er að hátt í þúsund byggingar hafi skemmst en það mun taka tíma að meta umfang skemmda vegna þess hve dreifbýl byggð er á eyjunni. Skólar og sjúkrahús urðu fyrir skemmdum Skólar, sjúkrahús og opinberar stofnanir urðu fyrir skemmdum. Sjúklingar fá læknisaðstoð utandyra en erfiðlega hefur gengið að koma nauðsynlegum hjálpargögnum á svæðin sem urðu verst úti. Margir vegir lokuðust vegna aurskriða sem féllu eftir skjálftann. Þúsundir gistu utandyra í nótt af ótta við eftirskjálfta og ljóst er að áhrif skjálftans á daglegt líf íbúa eru mikil. Hjálparstofnanir og björgunarlið vinna í kappi við tímann við að koma teppum, mat og hreinu vatni til nauðstaddra auk þess sem unnið er að því að koma upp fjöldahjálparstöðvum. Flores-eyja liggur austan við Bali og vestan við Tímor og er í eyjaklasanum milli Balihafs og Tímorhafs. Jarðskjálftar eru algengir við Indónesíu þar sem landið er staðsett í þekktu jarðskjálftabelti.

Share this article