Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Frekar litlar“ líkur á að göt myndist í skýjunum við sólmyrkva

Read Full Article →

Í dag verður hægt vaxandi austanátt og bjart með köflum. Skýjað að mestu á sunnanverðu landinu og sums staðar dálítil væta. Bætir í rigningu seinnipartinn. Hiti 12 til 18 stig. Austan og suðaustan 5 til 13 á morgun. Rigning eða súld með köflum en úrkomuminna norðanlands. Í nýjum veðurpistli frá Veðurstofu Íslands segir um spána fyrir almyrkva á sólu að skýjað verði á vestanverðu landinu með rigningu, einkum suðvestan til. Dálítil væta og ekki eins þungbúið norðvestan til en „líkur á að göt myndist í skýjunum eru frekar litlar“. Hiti 10 til 20 stig á morgun, svalast við sjóinn norðan og austan til. Norðan og norðaustan 8 til 13 á fimmtudag á norðvestanverðu landinu en hægari í öðrum landshlutum. Víða rigning eða skúrir en úrkomulítið suðvestan til. Hiti 12 til 19 stig.

Share this article