Helga Dís Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free. Helga Dís hefur starfað hjá félaginu frá því í febrúar og segir í tilkynningu að það sé fyrirtækinu sérstakt ánægjuefni að ráða í starfið úr eigin röðum. Undir viðskiptasvið Ísland Duty Free heyra vörustýring, markaðsmál, aðfangakeðja og birgðastýring. Sviðið gegnir því lykilhlutverki í mótun vöruúrvals og upplifunar viðskiptavina. „Við erum afar ánægð að fá Helgu Dís í þetta lykilhlutverk. Ráðningarferlið var vandað og samkeppnin hörð en afar sterkir umsækjendur bæði innan fyrirtækisins og utan þess sóttu um. Það segir sína sögu að niðurstaðan hafi verið innanhússráðning,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free. Helga hefur gegnt starfi vöruflokkastjóra snyrtivara og sérvöru hjá Ísland Duty Free undanfarna mánuði og þekkir því starfsemina, teymið og birgja félagsins vel. Sjá einnig Vilja að fríhafnarverðin skili sér til neytenda Áður starfaði hún hjá Samkaupum, fyrst sem þjónustu- og upplifunarstjóri, svo sem markaðsstjóri Nettó, þar sem hún stýrði markaðsmálum og þjónustuupplifun keðjunnar á landsvísu og loks sem vöruflokkastjóri. Þar áður var hún rekstrarstjóri veitingastaðarins Hjá Höllu á Keflavíkurflugvelli og starfaði um árabil hjá Bláa lóninu. „Ég er full tilhlökkunar að taka við þessu spennandi hlutverki. Fram undan eru einstakir tímar hjá Ísland Duty Free og ég hlakka til að leiða áfram uppbyggingu á vöruúrvali og upplifun viðskiptavina ásamt frábæru samstarfsfólki,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir. Helga Dís er með meistaragráðu í þjónustustjórnun og BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún sat í bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á árunum 2018 til 2024.