Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fríhöfnin endurnýjuð fyrir 1,5 milljarða

Read Full Article →

Ísland Duty Free, íslenska dótturfélag þýska fyrirtækisins Gebr. Heinemann, hefur lokið endurbótum og endurnýjun á fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugvelli og voru verslanirnar formlega opnaðar í dag. Kostnaður við breytingarnar nam meira en 1,5 milljörðum króna og segir í tilkynningu að um sé að ræða eina stærstu fjárfestingu í ferðaþjónustuverslun á Íslandi á síðari árum. Endurhönnunin hefur staðið yfir frá því Heinemann tók við rekstri fríhafnarverslananna vorið 2025. Sérleyfið var veitt í kjölfar alþjóðlegs útboðsferlis og markar langtímasamstarf Isavia og Heinemann Travel Retail Iceland ehf. Sjá einnig Vilja að fríhafnarverðin skili sér til neytenda Fyrirtækið rekur þrjár verslanir á flugvellinum, þar á meðal brottfararverslunina, sem er um 1.600 fermetrar, tvö þúsund fermetra komuverslun og verslun við brottfararhlið. Á bilinu 120 til 160 starfsmenn starfa hjá Ísland Duty Fee í samræmi við árstíma og álag. Meira en 370 fermetrar af verslunarrýminu eru tileinkaðir íslenskum vörum. © Aðsend mynd (AÐSEND) Að minnsta kosti 30% allra vörumerkja í verslununum eru íslensk og meira en 370 fermetrar af verslunarrýminu eru tileinkaðir íslenskum vörum. Samhliða voru tekin upp stafræn afgreiðslu- og söluferli. Boðið er upp á sjálfs- og snjallsímaafgreiðslu, stafræna hilluvöruverðlagningu og tollkvótaleiðbeiningar. „Sú upplifun sem við bjóðum upp á á Keflavíkurflugvelli skiptir miklu máli þar sem flugvöllurinn er tenging okkar við umheiminn. Fjölbreytt og gott vöruúrval í fríhafnarversluninni gegnir þar lykilhlutverki og gerir flugvöllinn samkeppnishæfari,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.

Share this article