Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Horfðu til himins í miðbæ Selfoss“

Read Full Article →

Lögreglan á Suðurlandi hvetur hins vegar íbúa til að vera heima og fylgjast með sólmyrkvanum þaðan. Það er spenna fyrir sólmyrkvanum hjá íbúum á Suðurlandi eins og öðrum íbúum landsins þótt spáin sé ekki góð fyrir svæðið en það er gert ráð fyrir skýjuðu og rigningu suðvestanlands. Forsvarsmenn nýja miðbæjarins á Selfossi eru þó bjartsýnir og hafa því boðað til hátíðar undir yfirskriftinni „Horfuðu til himins í miðbæ Selfoss“. Davíð Lúter Sigurðarson stýrir hátíðinni. „Þótt við séum ekki á besta stað segjum við bara að við séum á næsta besta stað, þá hvetjum við fólk hér á svæðinu til að upplifa sólmyrkvann saman. Það er örugglega skemmtilegra að vera með einhverjum öðrum í staðinn fyrir að vera bara heima og horfa út um gluggann. Við hvetjum bara alla til að kíkja í miðbæ Selfoss,” segir Davíð en samveran hefst klukkan 16:00. En hvað með deildamyrkvann, mun hann sjást líka vel eða hvernig er það? „Nú er ég enginn stjörnu Sævar en ég heyrði aðeins í honum um daginn og hann sagði að það væri stórkostlega að fylgjast með þessu líka á Suðurlandi þótt eins og ég segi að sé næst besti staðurinn, en nú er ég enginn stjörnufræðingur en mig hlakkar allavega til,” segir Davíð. Arndís Soffía Sigurðardóttir, aðstoðarlögreglustjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir að lögreglan skipuleggi sína löggæslu og mannafla með tilliti til sólmyrkvans en að lögreglan hvetji fólk á Suðurlandi til að njóta sólmyrkvans að heiman. Hún segist gera ráð fyrir því að umferðin verði mjög þung og þá gildi að sýna þolinmæði og hætta ekki á óþarfa framúrakstur.

Share this article