Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hólmbert bjargaði manni úr brennandi bíl í Suður-Kóreu

Read Full Article →

Hólmbert Aron Friðjónsson, atvinnumaður í fótbolta, vann hetjudáð um helgina þegar hann ásamt vini sínum bjargaði manni úr brennandi bíl. Hólmbert spilar fyrir liðið Gwangju FC í Suður-Kóreu og var liðið á heimleið eftir útileik þegar liðsmenn komu auga á bílinn. Bílnum hafði verið ekið aftan á vörubíl og lenti utan vegar þar sem hann stóð í ljósum logum. „Við sáum út undan okkur að þarna hafði orðið slys sem samt enginn hafði komið enn að, en við vorum að pæla í því hvort einhver væri í bílnum sem kviknað hafði í,“ segir Hólmbert. Bíllinn alelda á nokkrum mínútum Bílstjóri liðsrútunnar var smeykur yfir aðstæðum á vettvangi og óttuðust liðsmenn að bíllinn myndi springa. „Það voru allir eiginlega smá hræddir við að bíllinn myndi bara springa eins og í bíómyndunum. Þannig það var eiginlega verið að banna okkur að fara eitthvað út úr rútunni,“ segir Hólmbert. Hann fylgdi þó vini sínum sem stökk út og náðu þeir að draga bílstjórann út úr bílnum. Bílstjórinn virtist meðvitundarlaus og áttaði sig því ekki á að bíllinn stæði í ljósum logum. Þeir drógu manninn út úr bílnum og ekki hefði mátt tæpara standa. „Við hjálpuðum honum út og sjúkraþjálfarinn okkar dró hann svo í burtu og svo bara nokkrum mínútum seinna var bíllinn bara orðinn alelda, bara basically að fuðra upp,“ segir Hólmbert. Tekið fyrir á þekktri YouTube-rás Atvikið hefur vakið athygli í Suður-Kóreu en myndband af björguninni náðist á myndavél bíls sem átti leið hjá og var það til umfjöllunar á þekktri YouTube-rás og hafa fréttamiðlar sömuleiðis skrifað um afrekið. Hér fyrir neðan má sjá YouTube-myndbandið. Í myndbandinu er aðstæðum lýst og félögunum hampað fyrir björgunarafrekið. Hólmbert kveðst feginn að vel hafi farið, félagarnir hafi verið fljótir að jafna sig og hafi lítið pælt í atvikinu þar til í morgun. „Við vorum smá eitthvað svona, aðeins í sjokki í rútunni á leiðinni heim en svo pældum við ekkert meira í þessu fyrr en myndbandið var birt í dag, þetta er víst einhver fræg YouTube-rás hérna í Kóreu.“

Share this article