Innlent | Morgunblaðið | 15.9.2026 | 6:00 Andlát: Hólmbert Friðjónsson Hólmbert Friðjónsson. Setja bókamerki Hólmbert Friðjónsson fyrrverandi knattspyrnuþjálfari er látinn, 85 ára að aldri. Hann lést á Sólvangi í Hafnarfirði laugardaginn 12. september. Hólmbert fæddist í Keflavík 11. mars 1941. Foreldrar hans voru Friðjón Sighvatsson og Svanhvít Sigurjónsdóttir. Eftir hefðbundna skólagöngu lærði Hólmbert rafvirkjun og starfaði við fagið um hríð. Hann starfaði um langt skeið hjá bandaríska hernum á Keflavíkurflugvelli og var yfirmaður í innkaupadeild. Meðfram þeim störfum var hann bæði leikmaður og þjálfari í knattspyrnu. Eftirlifandi eiginkona Hólmberts er Dagmar Sæunn Maríusdóttir, fædd 1945. Þau gengu í hjónaband 1968. Hólmbert átti fyrir dótturina Jonnu Paulsen í Færeyjum, fædda 1964. Börn Hólmberts og Dagmarar eru Friðjón Örn, fæddur 1969, Ásgerður María, fædd 1971 og Maríus Garðar, fæddur 1979. Barnabörnin eru þrjú, Sylvía Dagmar Friðjónsdóttir, fædd 1989, Hólmbert Aron Friðjónsson, fæddur 1993 og Marel Andri Friðjónsson, fæddur 2001. Barnabarnabörnin eru fjögur og það fimmta er væntanlegt í heiminn í janúar. Hólmbert hóf að leika með knattspyrnuliði Keflavíkur í efstu deild sautján ára gamall. Hann var í fyrsta Íslandsmeistaraliði Keflavíkur árið 1964. Hann lagði skóna á hilluna árið 1968 og var þá ráðinn þjálfari Keflavíkur, 28 ára gamall. Árið eftir gerði hann liðið að Íslandsmeisturum. Hólmbert tók við þjálfun Fram árið 1979 og stýrði liðinu í þrjú ár. Liðið varð á þeim tíma tvisvar sinnum bikarmeistari. Eftir þetta réði hann sig til KR og þjálfaði þar í þrjú ár. Síðar þjálfaði hann Keflavík á ný í tvígang. Á ferlinum þjálfaði hann einnig Njarðvík, Víði í Garði og Ármann. Undir lok ferils síns var Hólmbert þjálfari 21-árs landsliðs karla. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » NATO skaut niður dróna yfir Litháen Lægir og léttir víða til Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Andlát: Hólmbert Friðjónsson Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Hvað ætla fyrirtækin að gera? Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Mest lesið Í gær Í vikunni Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Það andar ekki köldu í Hafnarfirði Biðja fólk að halda sig inni og loka gluggum Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » NATO skaut niður dróna yfir Litháen Lægir og léttir víða til Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Andlát: Hólmbert Friðjónsson Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tvær þyrlur ræstar út vegna veikinda úti á hafi Er hægt að hægja á þróun gervigreindar? Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Aðalmeðferð frestast enn á ný Mest lesið Í gær Í vikunni Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Það andar ekki köldu í Hafnarfirði Biðja fólk að halda sig inni og loka gluggum Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn