Jakobsson Capital metur markaðsvirði Skaga á tæpa 44 milljarða króna, eða 23,5 krónur á hlut, samkvæmt nýju verðmati sem birt var þann 7. ágúst síðastliðinn í kjölfar uppgjörs annars ársfjórðungs. Það er um 26% yfir markaðsgengi félagsins, sem var 18,6 krónur þegar verðmatið var unnið. Verðmatið hefur engu að síður verið lækkað um tæplega 3,5% frá fyrra mati, úr rúmlega 45,5 milljörðum króna. Verðmatsgengi lækkar minna, úr 23,7 krónum í 23,5 krónur, meðal annars vegna uppkaupa félagsins á eigin hlutabréfum. Ástæðan fyrir lækkun verðmatsins er einkum lakari afkoma fjárfestinga og fjármálastarfsemi en áður var gert ráð fyrir. Endurskoðuð rekstraráætlun Skaga gerir nú ráð fyrir að hagnaður eftir skatt verði tæplega 2,5 milljarðar króna á árinu, samanborið við 3,8 milljarða í fyrri spá. Sjá einnig Yfir 600 milljóna högg vegna Annata og Oculis Öðru máli gegnir um fjármálareksturinn. Tekjur hans námu 1,38 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og drógust saman frá fyrra ári, þvert á væntingar um vöxt. Rekstraráætlun Skaga gerir nú ráð fyrir 2,7 til 3,2 milljörðum króna í tekjur fjármálarekstrar á árinu, en upphaflegt markmið var 3,5 milljarðar. Félagið hefur gripið til hagræðingaraðgerða sem eigi að skila um 300 milljónum króna. Kostnaður fjármálarekstrar dróst þegar saman um rúmlega 3% milli ára á fyrri helmingi ársins. Horfur fyrir næsta ár eru talsvert bjartari í verðmatinu. Jakobsson Capital spáir 5,0 til 5,1 milljarðs króna hagnaði eftir skatt árið 2027, meðal annars vegna áframhaldandi sterks tryggingarekstrar, vaxtar í eignastýringu og væntinga um betri skilyrði á verðbréfamarkaði. Matið er þó næmt fyrir þróun tryggingarekstrar og ávöxtun fjárfestinga. Í næmnigreiningu Jakobsson Capital getur verðmatsgengið farið niður í kringum 19-21 krónu við lakari forsendur, en upp í 26-28 krónur við hagstæðari þróun. Sjá einnig Skagi jók hlutafé Fossa um 300 milljónir