Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Meta Skaga 50% yfir markaðsvirði

Read Full Article →

Greiningar­fyrir­tækið Akkur telur hluta­bréf Skaga veru­lega undir­verðlögð á markaði. Í nýrri greiningu á félaginu er virði bréfanna metið á 27,7 krónur á hlut, saman­borið við 18,5 króna loka­gengi 14. ágúst. Munurinn nemur um 50%. Akkur mælir með kaupum á bréfunum en flokkar ráð­legginguna sem áhættu­sama. Akkur beitir fjórum að­ferðum við matið. Mat á einstökum rekstrarþáttum gefur 25,9 krónur á hlut, mat út frá eigin fé 30,9 krónur, mat út frá hagnaði 27,6 krónur og arð­greiðslulíkan 26,6 krónur. Meðal­tal þessara fjögurra að­ferða er 27,7 krónur. Matið byggir meðal annars á því að af­koma Skaga verði sterkari þegar fjár­festingar­af­koman færist nær langtíma­meðaltali og tíma­bundnir kostnaðar­liðir ganga til baka. Akkur metur að við eðli­legar aðstæður geti hagnaður sam­stæðunnar numið um 4,3 milljörðum króna og arð­semi eigin fjár um 19%. Mark­mið Skaga er að arð­semi eigin fjár sé yfir 15%. VÍS ber stærstan hluta af­komunnar VÍS er langstærsti rekstrarþáttur Skaga og ber megin­hluta hagnaðar og eigin­fjárþar­far sam­stæðunnar. Fossar fjár­festingar­banki og Ís­lensk verðbréf mynda fjár­málaþjónustu­hlutann, sem er mun minni. Sam­sett hlut­fall VÍS var 90,4% á fyrri helmingi ársins. Það er lægsta skráða hlut­fall fyrri árs­helmings frá árinu 2007 sam­kvæmt Akkri. Tekjur af trygginga­rekstri jukust jafn­framt um 7,1%. Skagi gerir nú ráð fyrir að sam­setta hlut­fallið verði á bilinu 90–93% á árinu. Akkur bendir þó á að talan gefi betri mynd af undir­liggjandi af­komu en efni standa til. Um 6,3 pró­sentu­stig af sam­setta hlut­fallinu á fyrri árs­helmingi má að mati Akkurs rekja til hagstæðs endur­mats á eldri tjónum, sem nam rúmum milljarði króna fyrir endur­tryggingar. Sé ein­göngu horft til tjóna sem urðu á þessu ári reiknast hlut­fallið nær 96,7%, saman­borið við um 95% á sama tíma í fyrra. Þetta er einn helsti áhættuþátturinn í greiningunni. Eldri tjónaár­gangar fyrir 2023 báru um 2,2 milljarða króna af eftir­standandi tjóna­skuld­bindingum í árs­lok 2025, eftir að um 1,2 milljarðar höfðu verið leystir upp á síðasta ári. Að mati Akkurs gæti sá ávinningur að mestu verið upp­urinn á næstu einu til tveimur árum haldist þróunin óbreytt. Fjár­festinga­safnið ræður miklu Fjár­festinga­safn VÍS nemur um 51 milljarði króna og er meira en tvöfalt eigið fé Skaga. Af­koma safnsins getur því haft veru­leg áhrif á hagnað sam­stæðunnar. Um 27% safnsins voru í hluta­bréfum í lok júní og af­gangurinn að mestu í skulda­bréfum og öðrum vaxta­berandi eignum. Hlut­fall hluta­bréfa hafði lækkað úr um 34% frá áramótum. Með því dró úr eigin­fjárkröfu vegna hluta­bréfaáhættu um 1,25 milljarða króna. Akkur áætlar að hvert pró­sentu­stig í ávöxtun safnsins breyti hagnaði fyrir skatta um nálægt 500 milljónum króna. Ávöxtunin var 1,5% á fyrri helmingi ársins, langt undir 9,5% mark­miði félagsins. Þar vógu meðal annars neikvæðar breytingar á virði Ocu­lis og Annata. Akkur gerir ráð fyrir að fjár­festingar­af­koman batni, en bendir jafn­framt á að lækkandi vextir geti síðar dregið úr ávöxtun þegar skulda­bréf og aðrar vaxta­berandi eignir koma til endur­fjár­festingar á lægri vöxtum. Fossar og ÍV metin á 3,5 milljarða Fjár­málaþjónusta Skaga hefur ekki staðið undir fyrri væntingum. Tekju­spá ársins fyrir Fossa og Ís­lensk verðbréf var í júlí lækkuð úr 3,3–3,8 milljörðum króna í 2,7–3,2 milljarða. Tap fjár­málaþjónustunnar fyrir skatta nam 114 milljónum króna á fyrri helmingi ársins, en þar af mátti rekja um 110 milljónir til ein­skiptis­kostnaðar, meðal annars vegna stjórn­enda­skipta hjá Fossum og fækkunar starfs­fólks. Ís­lensk verðbréf stóðu betur. Tekjur félagsins jukust um 24% milli ára á fyrri helmingi ársins, hagnaður eftir skatta nam 37 milljónum króna og eignir í stýringu voru um 251 milljarður. Akkur metur Fossa og Ís­lensk verðbréf saman á um 3,5 milljarða króna, eða sem nemur 1,9 krónum á hvern hlut í Skaga. Að mati greiningar­fyrir­tækisins felur núverandi markaðs­gengi því í sér lítils virði fyrir mögu­legan vöxt fjár­málaþjónustunnar. Sjá einnig Skagi jók hlutafé Fossa um 300 milljónir Eigin­fjár­staða Skaga er sterk að mati Akkurs. Gjaldþols­hlut­fall sam­stæðunnar var 1,30 í lok júní, að teknu til­liti til fyrir­sjáan­legra út­greiðslna, en innra lág­mark félagsins er 1,175. Svigrúm sam­stæðunnar um­fram það lág­mark nam um 2,2 milljörðum króna. Hjá VÍS einu og sér var gjaldþols­hlut­fallið 1,48 og svigrúmið um 1,8 milljarðar. Skagi hafði á árinu greitt eða ráð­stafað um 1,8 milljörðum króna til hlut­hafa með arð­greiðslum og endur­kaupum eigin bréfa þegar greiningin var unnin. Akkur telur áfram vera svigrúm til út­greiðslna, sér­stak­lega haldi félagið áfram að draga úr áhættu í fjár­festinga­safninu og lækka þannig eigin­fjárþörfina. Spá tæp­lega 4,7 milljarða hagnaði á næsta ári Akkur spáir því að hagnaður Skaga verði tæpir þrír milljarðar króna á þessu ári og 4,7 milljarðar á næsta ári. Arð­semi eigin fjár er áætluð 12,3% í ár en 18,9% árið 2027. Miðað við spá Akkurs er hluta­bréfa­verð Skaga nú 7,3 sinnum áætlaður hagnaður ársins 2027. Mið­gildi sam­bæri­legs hlut­falls hjá þeim norrænu og evrópsku tryggingafélögum sem Akkur ber félagið saman við er um 15,5. Greiningar­fyrir­tækið gengur þó ekki svo langt í eigin mati og notar tólf­faldan hagnað. Með því er tekið til­lit til þess að Skagi er sam­stæða ólíkra fyrir­tækja, reksturinn í núverandi mynd á sér stutta sögu og við­skipti með hluta­bréf á ís­lenskum markaði eru minni en á stærri er­lendum mörkuðum.

Share this article