Björgunarskip voru kölluð út í morgun eftir að tilkynnt var um eld um borð í litlum fiskibát rétt fyrir klukkan átta. Báturinn var um tuttugu sjómílur norður af Flateyri. Einn maður var um borð. „Áhafnir björgunarskipanna Kobba Láka í Bolungarvík og Guðmundar í Tungu á Ísafirði voru strax boðaðar út á mesta forgangi ásamt áhöfn björgunarbátsins Stellu á Flateyri,“ segir í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. Slökkviliðsmenn frá Ísafirði fóru með Guðmundi í Tungu og áhöfn þyrlu var einnig kölluð út. „Eldurinn virtist loga í vélarrúmi og var slökkvikerfi bátsins virkjað og lokað niður í vélarrúm. Einn maður var um borð og þegar aðstoð barst var hann úti á dekki og var óhultur og ekki í hættu. Eldurinn virtist hafa kafnað nokkuð hratt en reykur stóð úr vélarrúmi í einhvern tíma.“ Báturinn var dreginn til hafnar á Suðureyri. Skipin komu þangað um ellefuleytið.