Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eldur í báti um tuttugu sjómílum norður af Flateyri

Read Full Article →

Rétt fyrir klukkan átta í morgun bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð um eld um borð í litlum fiskibát um tuttugu sjómílum norður af Flateyri. Hann var dreginn til hafnar á Suðureyri. Áhafnir boðaðar út á mesta forgangi Frá þessu segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg þar sem kemur fram að áhafnir björgunarskipanna Kobba Láka í Bolungarvík og Guðmundar í Tungu á Ísafirði hafi strax verið boðaðar út á mesta forgangi ásamt áhöfn björgunarbátsins Stellu á Flateyri. „Liðsmenn slökkviliðs Ísafjarðar fóru með Guðmundi í Tungu. Áhöfn þyrlu var einnig boðuð út. Nærstaddir bátar héldu þegar á staðinn til aðstoðar.“ Eldurinn virðist hafa kafnað nokkuð hratt Sagt er frá því að eldurinn hafi virst loga í vélarrúmi og að slökkvikerfi bátsins hafi verið virkjað og lokað niður í vélarrúm. Einn maður hafi verið um borð og þegar aðstoð barst hafi hann verið úti á dekki, óhultur og ekki í hættu. Eldurinn virðist hafa kafnað nokkuð hratt en reykur staðið úr vélarrúmi í einhvern tíma. Slökkvilið mætti á hafnarkantinn „Þegar björgunarskipin komu á vettvang tók Kobbi Láka bátinn í tog en hitamyndavél um borð í Guðmundi í Tungu var notuð til að meta stöðuna og sjá hvort mikill hiti væri í vélarrúmi og þar með hugsanlega enn logandi eldur. Svo virtist ekki vera. Báturinn var svo dreginn til hafnar á Suðureyri þangað sem skipin komu rétt um ellefu leytið en þá var slökkvilið mætt á hafnarkantinn til að tryggja að enginn eldur logaði. Björgunarskip og bátar voru svo komin til heimahafnar og gerð klár rétt um hádegið,“ segir í tilkynningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Share this article