Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fölsk flögg í kosningabaráttu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.8.2026 | 7:30 Fölsk flögg í kosningabaráttu Egill Almar Ágústsson. Ljósmynd/Aðsend Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Upplýsingaóreiða sú, sem greint var frá í blaðinu í gær, hefur átt greiða leið inn í raðir Já-hreyfingarinnar, þar á meðal til þingmanns og framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar, sem hafa vísað til umdeildrar tölfræði um gjaldmiðlamál á vefnum ríkissjóður.is, sem þrátt fyrir nafnið er ekki á snærum ríkisvaldsins. Mörgum brá í brún að sjá himinháar tölur um meintan kostnað landsmanna vegna krónunnar og fullyrt að Ísland hefði tekið upp evru um aldamótin, þegar henni var hleypt af stokkunum. Enn frekar þó vegna þess að þessar að því er virðist mikilvægu upplýsingar komu fram á vefnum ríkissjóður.is, sem flestir hafa ugglaust álitið vera á vegum hins opinbera, en ekkert kemur fram um aðstandendur vefjarins á síðum hans. Frétt af mbl.is Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Vefurinn tengist hinu opinbera ekki á nokkurn hátt, eins og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra staðfesti við Morgunblaðið. „Það er heppilegast að þau sem birta upplýsingar geri það undir nafni.“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í sama streng í samtali við Morgunblaðið í gær, „sérstaklega ef um er að ræða lén, sem gæti verið á vegum hins opinbera“. Hún gæti að öðru leyti ekki dæmt um málið, hún þekkti það ekki. Sumir Samfylkingarmenn könnuðust þó greinilega skjótt við vefinn, sem af skráningargögnum virðist hafa farið í loftið 8. eða 9. ágúst. Bæði Ása Berglind Hjálmarsdóttir alþingismaður Samfylkingar og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokksins hafa þannig deilt gögnum af vefnum á félagsmiðlum og ekki haft fyrir því að fjarlægja þau eftir að fram kom hvers kyns var. Huldumenn finnast Mörgum var skiljanlega hugleikið hver stæði að baki vefnum, sem bæði sigldi undir fölsku flaggi og birti óreiðukenndar upplýsingar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Hagfræðingar, sem blaðið ræddi við, sögðu þær ekki halda neinu vatni; þótt útreikningar virtust í lagi væru forsendurnar „út í loftið“ og lýstu mikilli vanþekkingu á umfjöllunarefninu. Isnic, sem annast skráningu léna á Íslandi, vildi ekki greina frá því hver stæði að baki léninu og bar við persónuvernd. Netvís hyggst ekkert aðhafast og ber við heimildaleysi. Einn þeirra, sem deildu efni af vefnum á félagsmiðlum, var Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður og einn ötulasti málsvari Já-hreyfingarinnar. Þegar hann var spurður að því á Facebook hver bæri ábyrgð á vefnum, sem hann deildi, svaraði hann því að það gerði hann sjálfur. Eftirgrennslan Morgunblaðsins leiddi hins vegar í ljós að skráður rétthafi þess væri Egill Almar Ágústsson frumkvöðull, sem m.a. hefur unnið að gervigreindarlausnum, en einnig haft sig mikið í frammi á félagsmiðlum sem já-maður. Hann staðfesti við blaðið að hann væri rétthafinn. Ríkissjóður.is er þó ekki eini vefurinn á hans snærum, því finna má fleiri svipaða vefi, gerða með aðstoð gervigreindarinnar Claude. Þar á meðal má nefna raundæmi.is, verðtryggingin.is og vextirnir.is. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fölsk flögg í kosningabaráttu Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Lizzo sýnir línurnar eftir 27 kílóa þyngdartap Maðurinn kominn í leitirnar Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Tjónið er altjón“ Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Gera ekki breytingar vegna sólmyrkva Ekki hagsmunir Íslands Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Skátaflokki vísað af móti „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Nýjast á mbl.is » Fölsk flögg í kosningabaráttu Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Lizzo sýnir línurnar eftir 27 kílóa þyngdartap Maðurinn kominn í leitirnar Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Tjónið er altjón“ Segir rauðu línuna dregna í auðlindum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Skátaflokki vísað af móti „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð

Share this article