Innlent | Morgunblaðið | 11.8.2026 | 13:47 Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Þetta er ekki upplýsingavefur ríkissjóðs heldur spuni huldumanna. mbl.is/Samsett mynd Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Þetta verður algjört skrímsli“ Ekki hagsmunir Íslands Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Ekki hægt að hafa stjórn á Evrópudómstólnum » Fleiri tengdar fréttir Svo kann að virðast sem ríkissjóður hafi undir léninu rikissjodur.is og ríkissjóður.is óvænt blandað sér í kosningabaráttuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna með útgáfu upplýsingavefs um kostnaðinn, sem hlotist hafi af því að hafa krónuna sem gjaldmiðil á þessari öld. Við nánari skoðun kemur þó í ljós að vefurinn er hinu opinbera alls óviðkomandi. „Nei, þetta er ekki á vegum ríkissjóðs eða nokkurra undirstofnana,“ svarar Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra Morgunblaðinu um þessar að því er virtist óvæntu vendingar. „Það er heppilegast að þau sem birta upplýsingar geri það undir nafni. Í þessu máli sem öðrum er mikilvægt að almenningur sé gagnrýninn á þær upplýsingar sem settar eru fram.“ Ekkert er ljóst um hver stendur í raun á bak við vefinn. Á honum kemur ekkert fram um það og ekki svo mikið sem netfang til þess að senda fyrirspurn á. Engar vísbendingar eru heldur um það í kóðanum á bak við vefinn, annað en að gervigreindin Claude frá Antropic hefur verið notuð til þess að smíða vefinn. Af textanum á vefnum að ráða hefur Claude einnig aðstoðað við að skrifa lesmálið á hann. Isnic vill ekkert segja Ekkert er heldur að græða á lénaskrá Isnic, sem annast skráningu léna á hinum íslenska hluta netsins. Þar er rétthafinn aðeins tilgreindur með notandanafninu EAA32-IS, sem kann þó að gefa vísbendingu um upphafsstafi hans. Morgunblaðið óskaði upplýsinga um rétthafann frá Isnic, en var synjað af persónuverndarástæðum. „ISNIC hefur skýra verkferla vegna gruns um rangar skráningarupplýsingar tengiliða. Í þessu tilviki eru skráningarupplýsingarnar fullnægjandi og ISNIC hefur ekki ástæðu til að vefengja réttmæti þeirra,“ segir í svari Þórs Jensen framkvæmdastjóra Isnic til blaðsins. Blaðið spurði hvort engar efasemdir eða varúðarsjónarmið kviknuðu þegar einstaklingur falaðist eftir léni tengdu stjórnvaldi, en svar við þeirri spurningu hefur ekki borist. Morgunblaðið sneri sér enn fremur til Netvíss, Netöryggismiðstöðvar Íslands undir forsjá Fjölmiðlanefndar. Hún hefur m.a. fengið það hlutverk að gæta að upplýsingaóreiðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, enda sé „röngum og villandi upplýsingum gjarnan beitt til að hafa áhrif á skoðanamyndun og ákvarðanatöku í lýðræðisríkjum“. Svar hafði ekki borist þaðan í gærkvöld. Milljarðar og billjónir Á umræddum vef er fullyrt að krónan hafi kostað landsmenn 6.432 milljarða króna á árunum 2000-2024. Þar að baki búa ýmsir útreikningar, sem virðast ekki úr lausu lofti gripnir fyrr en forsendurnar eru skoðaðar. Það er gengið út frá því að Ísland hefði notað evru frá upphafi hennar um aldamótin, en skuldir landsmanna engu að síður þróast nákvæmlega eins og raun varð á með bankahruni og öllu. Íslenskur vaxtakostnaður er síðan borinn saman við miðgildi ellefu evruríkja. Hvorki er tekið tillit til breyttrar lántöku, skuldsetningar, verðbólgu né lánshæfis, þó að í texta sé raunar viðurkennt að ódýrara lánsfé hefði að líkindum leitt til meiri skulda. Á verðbætur er hins vegar litið sem útborgað reiðufé. Vaxtagreiðslur heimila, fyrirtækja og hins opinbera eru síðan lagðar saman eins og féð hafi horfið úr þjóðarbúinu, þótt það hafi að mestu runnið til íslenskra banka, lífeyrissjóða og sparifjáreigenda. Þó er í texta viðurkennt að „aðeins“ 1.289 milljarðar geti talist sparnaður hins opinbera, en það er ekki tekið með í reikninginn. Samt er heildartalan sögð jafngilda 30 nýjum Landspítölum, sex samgönguáætlunum eða nær tvöföldum skuldum ríkissjóðs. Þá er fullyrt að féð væri orðið 16.190 milljarðar hefði það ávaxtast eins og norski olíusjóðurinn. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB „Þetta verður algjört skrímsli“ Ekki hagsmunir Íslands Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Ekki hægt að hafa stjórn á Evrópudómstólnum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Bjargaði manni úr brennandi bíl í Suður-Kóreu Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Öflugasti skjálfti Kólumbíu í áratug: 169 látnir Rannsaka þotu sem missti skyndilega hæð Slegið í gegn með Liverpool en má ekki spila Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvaða lærdóm má draga af atburðunum í Ceuta? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tveir menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna mannsláts Endurtaka tilraun sem sannaði Einstein Krefjandi björgunaraðgerð við Háafoss í nótt Veðurhorfur heldur versnað Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Komu auga á fjölda ísjaka „Tjónið er altjón“ Sá þriðji úrskurðaður í gæsluvarðhald Ekki hagsmunir Íslands Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Bæjarstjóri um Kársnesmálið: „Þetta er skelfilegt“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Bjargaði manni úr brennandi bíl í Suður-Kóreu Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Öflugasti skjálfti Kólumbíu í áratug: 169 látnir Rannsaka þotu sem missti skyndilega hæð Slegið í gegn með Liverpool en má ekki spila Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvaða lærdóm má draga af atburðunum í Ceuta? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minkarnir hættir að koma í gildrurnar Sá þriðji úrskurðaður í gæsluvarðhald Hulunni svipt af leyniflugi Trumps Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Komu auga á fjölda ísjaka „Tjónið er altjón“ Sá þriðji úrskurðaður í gæsluvarðhald Ekki hagsmunir Íslands Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Bæjarstjóri um Kársnesmálið: „Þetta er skelfilegt“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð