Fjord Hotels rekur í dag fjögur hótel á Íslandi með samtals 207 herbergi en félagið hefur vaxið hratt á undanförnum misserum. Saga Fjord Hotels á rætur að rekja til veitingarekstrar á Norðurlandi árið 2022, að sögn Einars Hannessonar, stjórnarformanns og eins eigenda félagsins. Einar og Guðbjörg Einarsdóttir, eiginkona hans, ráku á þeim tíma Eyju Vínstofu á Akureyri. Þau kynntust síðar þeim Bjarna Rúnari Bequette og Halldóru Guðjónsdóttur, sem ráku veitingastað á Siglufirði undir merkjum Sigló veitinga, ásamt því að flytja inn vín. „Úr þeim kynnum varð til samstarf sem ég held að ekkert okkar hefði getað séð fyrir,“ segir Einar. Fyrsta verkefni þeirra var veitingarekstur í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Ekki leið á löngu þar til nýtt tækifæri gafst þegar Hótel Vesturland í Borgarnesi stóð án rekstraraðila og þeim bauðst að taka við rekstrinum. Hópurinn lét til skarar skríða, gekk frá langtímaleigusamningi um húsnæðið og í mars 2024 voru dyr Hótels Vesturlands opnaðar á ný fyrir gestum. „Ferlið við að fara inn í hótelrekstur var bæði erfitt og lærdómsríkt. Það voru næg verkefni fram undan áður en við fengum lyklana, en verkefnalistinn lengdist verulega þegar við tókum við húsinu og enn frekar þegar fyrstu gestirnir fóru að koma,“ segir Einar. Um það leyti sem hótelið var opnað bættist Friðrik Sigfússon, einn besti vinur Bjarna, í eigendahópinn og varð fimmti eigandi félagsins. Hótel Vesturland er stærsta hótelið innan keðjunnar. Um mitt ár 2025 hófust viðræður um bæði Hótel Glym í Hvalfirði og Eldey Airport Hotel í Keflavík. Bæði hótelin voru opnuð undir merkjum Fjord Hotels snemma árs 2026 eftir umfangsmiklar endurbætur og undirbúningsvinnu. Félagið tók síðan við rekstri Hótel Bifrastar í byrjun maí. Hótel Vesturland í Borgarnesi er stærsta hótel keðjunnar með 81 herbergi. © Sveinn Ólafur Melsted (Sveinn Ólafur Melsted) Fyrsta árið reyndi á Einar segir að fyrsta árið í hótelrekstri hafi reynt verulega á eigendur og starfsfólk. Þegar hópurinn tók við Hótel Vesturlandi fylgdu ýmsar áskoranir frá fyrra rekstrarskeiði. Meðal annars tók rúmt ár að fá hótelið aftur skráð og sýnilegt á Booking.com, eina stærstu bókunarsíðu heims. Einar segir slíkar bókunarsíður skipta miklu máli fyrir hótel utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem þær skili stórum hluta lausabókana. „Það sem kom okkur í gegnum fyrsta árið var öflugt samstarf við ferðaskrifstofur, bæði innlendar og erlendar. Við vorum með reynslu og sterk tengsl í greininni frá fyrri verkefnum og nutum trausts hjá samstarfsaðilum okkar. Fólk vissi hver við værum og að við værum komin til að byggja upp rekstur til lengri tíma,“ segir Einar. Hann segir reynsluna af því að byggja upp rekstur við mótlæti og treysta á fjölbreyttar sölurásir, fremur en eina, hafa mótað vinnubrögð félagsins. „Við lærðum mikið á þessu fyrsta ári, ekki síst hversu mikilvægt það er að vera með fjölbreyttar sölurásir, sterk sambönd við samstarfsaðila og vera ekki of háður einum bókunarmiðli eða einum viðskiptavinahópi.“ Þrjú hótel voru lokuð við yfirtöku Það hefur gengið á ýmsu í uppbyggingu félagsins, að sögn Einars. Þrjú af þeim fjórum hótelum sem eigendahópurinn hefur tekið við voru lokuð þegar yfirtakan fór fram. Nýjasta hótelið, Hótel Bifröst, var þegar í rekstri þegar félagið tók við starfseminni í byrjun maí. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .