Það hefur gengið á ýmsu í uppbyggingu Fjord Hotels, að sögn Einars Hannessonar, eins eiganda félagsins. Þrjú af þeim fjórum hótelum sem eigendahópurinn hefur tekið við voru lokuð þegar yfirtakan fór fram. Nýjasta hótelið, Hótel Bifröst, var þegar í rekstri þegar félagið tók við starfseminni í byrjun maí. Auk Hótel Bifrastar rekur félagið nú Hótel Vesturland í Borgarnesi, Eldey Airport Hotel í Keflavík og Hótel Glym í Hvalfyrði. Það hefur kallað á mikla vinnu við að koma starfseminni aftur af stað, ráða og þjálfa starfsfólk, koma öllum kerfum í virkni og byggja upp sýnileika hótelanna á ný gagnvart viðskiptavinum og á helstu bókunarrásum. Eigendahópurinn bjó þegar yfir sterkum tengslum við innlendar og erlendar ferðaskrifstofur frá fyrri verkefnum. Einar segir þau sambönd hafa reynst afar mikilvæg við að koma hótelunum aftur inn á markaðinn. „Þegar hótel hefur verið lokað um tíma hverfur það að ákveðnu leyti úr vitund markaðarins. Það þarf því ekki aðeins að opna dyrnar á ný heldur einnig að endurbyggja sýnileika, eftirspurn og traust viðskiptavina,“ segir Einar. Samkeppnin heldur félaginu á tánum Einar segir mörg öflug og vel rekin ferðaþjónustufyrirtæki vera starfandi á þeim svæðum þar sem Fjord Hotels rekur hótel. „Við sjáum að það eru mörg flott og öflug fyrirtæki á þeim svæðum þar sem við störfum. Sú samkeppni heldur okkur vel á tánum og hvetur okkur til að halda áfram að bæta þjónustuna og þróa reksturinn,“ segir Einar. Einar segir rekstur hótelanna undir sama hatti skila umtalsverðum samlegðaráhrifum í innkaupum, sölu, markaðssetningu og daglegum rekstri. Á sama tíma sé lögð áhersla á að hver eining beri skýra ábyrgð á eigin rekstri og afkomu. „Við viljum nýta samlegðina þar sem hún skilar ávinningi, en jafnframt varðveita sérstöðu hvers hótels. Hvert hótel þarf að hafa sína ásýnd og sína tengingu við nærumhverfið.“ Skalanlegt rekstrarlíkan félagsins skapi forsendur fyrir frekari vexti á komandi árum. FJORD HOTELS leggja upp úr fjölbreyttu úrvali herbergja og góðri veitingaþjónustu á samkeppnishæfu verði. © Aðsend mynd (AÐSEND) Suðurland og Norðurland næst á dagskrá Einar segir Fjord Hotels hvergi nærri hætt að vaxa. „Við leitum stöðugt að verkefnum sem styrkja keðjuna og markmiðið er skýrt: að loka hringnum í kringum landið eins fljótt og skynsamlegt er, vera með hótel í öllum landsfjórðungum og jafnvel ná fótfestu á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann. Félagið horfir næst sérstaklega til Suðurlands og Norðurlands. „Á Suðurlandi eru mörg sterk og vel rekin ferðaþjónustufyrirtæki. Þar þurfum við að finna réttu verkefnin og vanda vel til verka. Tækifærin felast meðal annars í því að mæta mikilli eftirspurn og byggja upp öflugan heilsársrekstur,“ segir Einar. Þá sé Norðurland náttúrulegt framhald. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .