Innlent | mbl | 12.8.2026 | 11:03 „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Slökkva á ljósastaurum og loka götum Flykkjast að landinu fyrir myrkvann Endurtaka tilraun sem sannaði Einstein Já til að sjá, en hvað lokast? Dýrmæt innsýn inn í líf fólks á þessum tíma » Fleiri tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Spennan yfir sólmyrkva ógurleg á Snæfellsnesi „Uppselt“ verði að Látrabjargi seinna í dag Þurrum fótum yfir Breiðafjörð » Fleiri tengdar fréttir Stjörnu-Sævar segist hafa brotnað nokkrum sinnum niður í aðdraganda sólmyrkvans í dag. Hann hafi unnið baki brotnu að undirbúningi og fræðslu um hann í tvö ár og ekki fengið þann stuðning sem hann vonaðist eftir. Hann er þó ánægður með að sjá þjóðina sameinast í áhuga sínum á náttúruundrinu. Sævar Helgi Bragason er gestur Dagmála mbl.is í dag. Þar ræddi hann eitt og annað er varðar almyrkvann. Áskrifendur geta séð viðtalið í heild sinni hér. Hefur upplifað almyrkva á sólu fjórum sinnum Hann sést á sjötta tímanum á vestanverðu Íslandi í dag en 72 ár eru síðan síðasti almyrkvi varð hér á landi og 170 ár eru í næsta skipti. Veðurspáin á höfuðborgarsvæðinu er ekki eins og best væri á kosið. Sævar segir það vissulega vera vonbrigði en að upplifunin verði engu að síður ótrúleg. Frétt af mbl.is „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn gengur yfir á sjötta tímanum í dag. mbl.is/RAX „Þú þarft ekki fullkomið veður“ Sævar hefur verið heppinn á sínum ferðalögum þar sem hann eltir almyrkvann. Hann hefur séð fyrirbærið fjórum sinnum um ævina í útlöndum. Litlu mátti muna þegar hann var staddur á Indónesíu þar sem var alskýjað en skýjahulan brotnaði upp með þeim afleiðingum að almyrkvinn sást í gegnum hana. Hið sama gæti gerst á suðvesturhorni landsins þar sem skýin hafa hrannast upp. „Þú þarft ekki fullkomið veður. Göt eru það eina sem við þurfum,“ segir Sævar. Ekki er öll von úti en Sævar heldur í þá von að þetta verði tilfellið í dag. Um leið segist Sævar þekkja marga sem hafi séð skýjaða almyrkva. Þeir lýsi allir því sama; að upplifunin sé sterk og algjörlega mögnuð. Hún sé eins og skyndileg nótt um miðjan dag. Sævar hvetur fólk til að nýta tækifærið, gera sem mest úr deginum og halda partí í kringum almyrkvann. Stjörnu-Sævar ætlar að skála í kampavíni eftir sólmyrkvann. mbl.is/María Langur aðdragandi en algjör skortur á stuðningi Stjörnu-Sævar segist hafa byrjað að huga að undirbúningi í kjölfar deildarmyrkvans 2015. Hann hafi í kjölfarið þrýst á sveitarfélög, stjórnvöld og ferðaþjónustufyrirtæki og brýnt fyrir þeim að taka þátt í undirbúningnum fyrir almyrkvann í ár. Síðustu tvö ár segir Sævar að hann hafi, ásamt litlu teymi, unnið baki brotnu að því að miðla fræðsluefni, meðal annars á vefnum solmyrkvi2026.is . „Þá var ég rosa bjartsýnn á að sem flestir myndu vilja vera með mér í liði og gera sem mest úr þessu en „boj,“ hvað ég hafði rangt fyrir mér þar. Þannig að þetta er búið að vera smá hark,“ segir Sævar sem bætir því við að algjör skortur hafi verið á stuðningi við verkefni hans. „Þannig að þetta hefur bara verið svona einkaframtak sem ég er náttúrulega ákaflega stoltur af á þessum lokaspretti, að hafa þó náð að kveikja áhuga heillar þjóðar.“ Sólmyrkvagleraugu. Hættulegt er fyrir sjónina að stara á sólmyrkvann án þar til gerðra gleraugna. Ljósmynd/Aðsend Sólgleraugun báru uppi framtakið Sævar á þarna meðal annars við fræðsluverkefni um sólmyrkvann fyrir börn. Hann segist hafa sótt um fjölda styrkja til ýmissa aðila en að þeim hafi öllum verið neitað. „Þannig að allt sem hefur verið gert í fræðslu hefur bara verið fjármagnað með sólmyrkvagleraugum og varningi sem þessu tengist.“ „Að búa til vefina, búa til nauðsynlegt fræðsluefni sem þurfti svo sannarlega að búa til og ákveðnir aðilar gerðu það ekki þótt þeim hafi boðist það. Þannig að það er margt sem ég hefði viljað geta gert betur,“ bætir Sævar Helgi við. Sævar Helgi Bragason var gestur Dagmála á degi sólmyrkvans. mbl.is/María Til Tenerife í frí Að þessu sögðu ætli hann þó ekki að staldra við baksýnisspegilinn heldur njóta dagsins eins vel og kostur er á, meðal annars með því að skála í góðu kampavíni fyrir „brjálæðislega mikilli vinnu síðustu ár“. „Undanfarin vika hefur bara verið dálítið mjög mikið erfið, endalaus símtöl og áreiti og tölvupóstar sem ég hef bara ekki haft tök á að svara af því að þetta er of mikið. Þannig að fólk sem bíður eftir svari, afsakið. Og maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður, í fyrsta lagi þegar maður sér að veðurspáin er ekki eins og maður vildi óska sér en við getum náttúrulega ekkert gert í því.“ Sævar segist aðspurður ætla að taka sér gott frí að sólmyrkvanum loknum. Hann muni í fyrsta sinn halda til Tenerife á Spáni í afslökun. Þar muni hann vonandi fá að sjá deildarmyrkva á tungli aðfaranóttina 28. ágúst. Tengdar fréttir Dagmál Slökkva á ljósastaurum og loka götum Flykkjast að landinu fyrir myrkvann Endurtaka tilraun sem sannaði Einstein Já til að sjá, en hvað lokast? Dýrmæt innsýn inn í líf fólks á þessum tíma » Fleiri tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Spennan yfir sólmyrkva ógurleg á Snæfellsnesi „Uppselt“ verði að Látrabjargi seinna í dag Þurrum fótum yfir Breiðafjörð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvænt orðaður við hollenska landsliðið Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Segir rauðu línuna dregna í auðlindum Eldsvoði í Grafarvogi: Einn fluttur á bráðadeild Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Nýjast á mbl.is » Óvænt orðaður við hollenska landsliðið Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólk komist hraðar á milli staða Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til Eldsvoði í Grafarvogi: Einn fluttur á bráðadeild Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna