Innlent | Morgunblaðið | 7.8.2026 | 12:54 „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Sævar Helgi Bragason. mbl.is/Kristinn Magnússon Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Nýr upplýsingvefur Samgöngustofu vegna almyrkvans Af hverju er sólmyrkvi ekki einu sinni í mánuði? Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Viðbúin ef hættu- eða neyðarástand skapast » Fleiri tengdar fréttir Búist er við fjölda ferðamanna til landsins vegna sólmyrkvans næsta miðvikudag, 12. ágúst, og eins og greint hefur verið frá er komið talsvert af varningi tengdum við sólmyrkvann. Sagt hefur verið frá Ísey-skyrinu Sólmyrkva og Sólmyrkvabjór hér í Morgunblaðinu en einnig eru til bolir merktir sólmyrkvanum, derhúfur, áfengir drykkir og margt fleira. „Við erum með talsvert margar vörur sem tengjast sólmyrkvanum,“ segir Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar. „Ég hef verið að selja sólmyrkvagleraugu, ljósmyndasíur, snjallsímasíur, boli, derhúfur, bók og fleira á sólmyrkvagleraugu.is og kem að mörgum þeim vörum sem hafa verið merktar sólmyrkvanum.“ Þar má nefna bjórinn Sólmyrkva, sem Stjörnu-Sævar vann með Litla brugghúsinu og var sérstaklega markaðssettur fyrir þennan stóra viðburð, og einnig hefur Sævar tengst hönnun á sérstöku kampavíni með Kampavínsfjelaginu sem er kallað Almyrkvi. „Ég er mikill kampavínsunnandi og segi eins og Winston Churchill um kampavínið: „Í sigri á ég það skilið, í tapi þarfnast ég þess.“ Frétt af mbl.is Stjörnu-Sævar kominn í bjórinn Svo tengist ég líka hönnun á sérstakri sólmyrkvaúraseríu með JS Watch co. í Reykjavík sem er seld í litlu upplagi út um heim vegna þessa sérstaka viðburðar,“ segir Sævar en úrin eru framleidd í nokkrum litum og aðeins lítið upplag af hverjum lit. „En ég ber enga ábyrgð á skyrinu,“ segir hann og hlær en margir hafa eflaust tekið eftir skyrdollunum í verslunum. Sævar segir að sólmyrkvatáknið sé rauður þráður í hönnuninni á varningnum og að þetta verði einstakur viðburður og skemmtilegur. „Ég ætla ekki að fara vestur, heldur mun ég fylgjast með að heiman úr Fossvoginum með vinum og vandamönnum með sjónaukann. Við munum taka einhverjar myndir en fyrst og fremst njóta þessarar merku stundar,“ segir Sævar sem hefur neitað allri fararstjórn á deginum góða. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Nýr upplýsingvefur Samgöngustofu vegna almyrkvans Af hverju er sólmyrkvi ekki einu sinni í mánuði? Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Viðbúin ef hættu- eða neyðarástand skapast » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Varað við vindhviðum Stórviðburður í Kópavogi Áhugi frá Ítalíu á Arsenal-manninum Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning „Það er meira eyðilagt, verið að grúska og tæta“ ESB mun semja fyrir okkur Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Virkjunarleyfi í höfn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð „Evran gæti orðið meira en gildra“ Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Varað við vindhviðum Stórviðburður í Kópavogi Áhugi frá Ítalíu á Arsenal-manninum Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Virkjunarleyfi í höfn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð „Evran gæti orðið meira en gildra“ Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar