Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjöldi ísjaka berst til landsins úr stórri íseyju milli Íslands og Grænlands

Read Full Article →

Stór íseyja hefur hringsólað á milli Vestfjarða og Grænlands síðustu vikur. Minni jakar brotna úr henn berast að ströndum landsins. Vel er þekkt að borgarísjakar rati að ströndum landsins síðsumars og á haustin. Landhelgisgæslan fer reglulega í ískönnunarflug og þaðan hafa borist nokkrar tilkynningar um stóra jaka nálægt landi að undanförnu. „Það sem er búið að vera svolítið spennandi núna í sumar er að það kom ansi stór íseyja, fleiri kílómetrar á lengd og breidd. Hún hefur haldist nokkurn veginn miðja vegu á milli Vestfjarða og Grænlands,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur og hafíssérfræðingur við Háskóla Íslands. Þar hefur íseyjan hringsólað að undanförnu sem er óvenjulegt að sögn Ingibjargar. „Og á meðan hún gerir það hafa minni jakar verið að brotna upp úr henni.“ Á gervitunglamyndum frá því í gær sést að stórir jakar hafa brotnað úr eyjunni. Því megi búast við talsvert fleiri borgarísjökum á næstunni. Ingibjörg segir að þó svo Landhelgisgæslan fylgist með sé mikilvægt að sjófarendur tilkynni um jaka þegar þeir eru komnir nálægt landi eða inn á siglingaleiðir. Litlir jakar sem sjáist illa í ratsjá geti verið hættulegir. Borgarísjaki í Norðurfirði ekki truflað trillusjómenn Í fyrradag var tilkynnt um borgarísjaka í Norðurfirði á Ströndum. Lúðvík Gunnlaugsson, trillusjómaður á Önnu frá Norðurfirði, sagði fréttastofu í gær að þetta gerðist ekki oft. Hann man þó ekki eftir að jaki hafi ratað inn í fjörðinn í fyrra. Jakarnir hafi ekki haft mikil áhrif á veiðarnar. Sjómenn þurfi þó að gæta að því að jakarnir sjáist illa í myrkri. „Þetta er ekkert að trufla okkur. Það er flott að sjá þetta.“

Share this article