Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Margir ísjakar berast til landsins úr stórri íseyju milli Íslands og Grænlands

Read Full Article →

Stór íseyja hefur hringsólað á milli Vestfjarða og Grænlands á síðustu vikum. Úr henni brotna minni jakar og berast nálægt ströndum landsins. Vel þekkt er að borgarísjakar rati nálægt ströndum landsins síðsumars og á haustin. Landhelgisgæslan fer reglulega í ískönnunarflug og þaðan hafa borist nokkrar tilkynningar um stóra jaka nálægt landi að undanförnu. „Það sem er búið að vera svolítið spennandi núna í haust er að það kom ansi stór íseyja, fleiri kílómetrar á lengd og breidd. Hún hefur haldist nokkurn veginn miðja vegu á milli Vestfjarða og Grænlands,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur og hafíssérfræðingur við Háskóla Íslands. Þar hefur íseyjan hringsólað að undanförnu sem er óvenjulegt að sögn Ingibjargar. „Og á meðan hún gerir það þá hafa minni jakar verið að brotna upp úr henni.“ Á gervitunglamyndum frá því í gær sést að stórir jakar hafa brotnað úr eyjunni. Því megi búast við talsvert fleiri borgarísjökum á næstunni. Ingibjörg segir að þó að Landhelgisgæslan fylgist með þá sé mikilvægt að sjófarendur tilkynni um jaka þegar þeir eru komnir nálægt landi eða inn á siglingaleiðir. Litlir jakar sem sjáist illa í ratsjá geti verið hættulegir. Borgarísjaki í Norðurfirði ekki truflað trillusjómenn Í fyrradag var tilkynnt um borgarísjaka í Norðurfirði. Lúðvík Gunnlaugsson, trillusjómaður á Önnu frá Norðurfirði, sagði í samtali við fréttastofu í gær þetta ekki gerast oft. Hann man þó ekki eftir að jaki hafi ratað inn í fjörðinn í fyrra. Hann segir jakana ekki hafa haft mikil áhrif á veiðarnar. Sjómenn þurfi þó að passa sig á að fara ekki út í myrkri því jakarnir sjáist illa í myrkri. „Þetta er ekkert að trufla okkur. Það er flott að sjá þetta.“

Share this article