Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnaður Kviku dregst saman milli ára

Read Full Article →

Hagnaður Kviku banka af áframhaldandi starfsemi fyrir skatta nam 1.545 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi 2026, samanborið við 2.025 milljónir á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar. Hagnaður eftir skatt nam 903 milljónum króna, sem er 536 milljónum minna en á öðrum ársfjórðungi síðasta árs og um 37,2% samdráttur. Þrátt fyrir lakari afkomu á fjórðungnum segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, að reksturinn hafi gengið prýðilega. „Rekstur bankans á öðrum fjórðungi gekk prýðilega og mörg stór skref voru stigin í þá átt að auka arðsemi bankans til framtíðar. Fyrri árshelmingur var í heild sinni mjög góður og umtalsverð hagnaðaraukning milli ára." Hagnaður af áframhaldandi starfsemi eftir skatta nam 2.277 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 1.625 milljónir á sama tímabili í fyrra. Hreinar vaxtatekjur Kviku námu 3.013 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi og jukust um 1,7% frá fyrra ári. Vaxtamunur nam 4% og var óbreyttur milli ára. Þóknanatekjur námu 1.416 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi og drógust saman um 26,8% milli ára. Í tilkynningunni segir að samdrátturinn skýrist meðal annars af óvenjuháum þóknanatekjum á öðrum ársfjórðungi í fyrra vegna sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Þá hafi erfiðar markaðsaðstæður á íslenskum hlutabréfamarkaði einnig haft áhrif. Straumur settur í söluferli Kvika hefur jafnframt ákveðið að hefja söluferli á greiðsluþjónustufyrirtækinu Straumi, dótturfélagi bankans. Í tilkynningu bankans segir að stjórn og stjórnendur telji greiðsluþjónustu þá starfsemi innan samstæðunnar sem samræmist einna síst stefnu Kviku og annarri starfsemi bankans. Einkaviðræður um sölu Straums standa nú yfir og vonast stjórnendur til að viðskiptunum verði lokið fyrir árslok. Á fjórðungnum gaf Kvika einnig út víkjandi AT1-skuldabréf í Svíþjóð að jafnvirði um fjögurra milljarða króna. Þá gaf bankinn út 150 milljóna evra skuldabréf í júní á kjörum sem samkvæmt Kviku samsvara um 1,65% álagi á millibankavexti. Stjórnendur bankans gera ráð fyrir að sú fjármögnun verði meðal annars nýtt til að endurfjármagna dýrari erlenda fjármögnun síðar á árinu og telja að það geti stutt við vaxtamun bankans næstu misseri.

Share this article