Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Geta nú gert mælingar á þúsund metra dýpi

Read Full Article →

Árlegar umhverfismælingar kringum landið á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur hófust 4. ágúst og standa í átján daga. Þetta kemu fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Í leiðangrinum fara einnig fram rannsóknir tengdar öðru en umhverfismælingum. Mælingar í yfir fimmtíu ár „Fjölbreyttum verkefnum á sviði hafeðlis- og efnafræði er sinnt í leiðangrinum en sumar af mælingunum hefur Hafrannsóknastofnun stundað í meiri en 50 ár. Vert að taka fram að langtímarannsóknir sem þessar eru lykill að því að auka þekkingu á vistkerfum og breytingum á umhverfi sjáva,“ segir í umfjöllun á vef Hafrannsóknastofnunar. Mæla á 1.000 metra dýpi með nýjum tækjum Nánar segir að leiðangurinn feli í sér langtímavöktun á hita, seltu, súrefni og næringarefnum. Þá fari fram mælingar á ólífrænu kolefni sem gefi upplýsingar um súrnun sjávar. „Með nýjum tækjabúnaði er nú unnt að mæla straumhraða og -stefnu á allt að 1000 m dýpi á siglingaleið skipsins. Í Grænlandssundi og á Hornbanka hefur þegar verið skipt um tvær straumlagnir með síritandi mælitækjum á hafsbotni sem fylgjast með hafstraumum milli Íslandshafs og Norður-Atlantshafs.“ Meta áhrif sjókvíaeldis inni á fjörðum Í þessum leiðangri er einnig farið inn á Vestfirði og Austfirði þar mældur er hiti, selta, straumar, súrefni, næringarefni og svifþörungar til að meta áhrif sjókvíaeldis á umhverfi fjarðanna. Einnig eru gerða umhverfismælingar í Húnaflóa á vegum Life ICEWATER verkefnisins, sjá nánar hér um það. Að endingu segir að einnig fari fram árlegar stofnmælingar á sæbjúgum utan Vest- og Austfjarða og á sandsílum við Suðurströnd landsins og í Faxaflóa.

Share this article