Haustmæling loðnu 2026 hófst 23. ágúst og stendur til 24. september. Um er að ræða sameiginlegan leiðangur Hafrannsóknastofnunar á Íslandi og Náttúruauðlindastofnunar Grænlands (GINR). Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Tarajoq hóf mælingarinnar um helgina suðvestur af Íslandi „Rannsóknaskipið Tarajoq, á vegum GINR, hóf sinn hluta mælingarinnar um helgina suðvestur af Íslandi. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson bætist svo í leiðangurinn 8. september. Áætlað er að mæling r/s Tarajoq taki 16 daga, en að r/s Árni Friðriksson verði 17 daga á sjó við bergmálsmælingar. Alls er ráðgert að skipin sigli 6084 sjómílur,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar. Meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu Fyrirhugaðar leiðarlínur r/s Tarajoq (rauð lína) og r/s Árna Friðrikssonar (blá lína) í loðnumælingunni haustið 2026. Hefðbundnar sjórannsóknastöðvar með mismunandi sýnatökubúnaði eru sýndar sem punktar. Markmið mælingarinnar er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu Ísland, Austur-Grænland og Jan Mayen. Haustmælingar loðnu hafa verið framkvæmdar frá árinu 1978. Í því felst sýnataka og mælingar á plöntusvifi (undir PHATE-verkefninu), dýrasvifi, uppsjávarfiskum og eðlisþáttum sjávar á svæðinu. Fylgjast má með ferðum og staðsetningu skipanna hér . Niðurstöður um miðjan október Þá segir að í ár hafi Hafrannsóknastofnun aukið framlag sitt til vistfræðirannsókna enn frekar með þátttöku tveggja hvalatalningamanna á Árna Friðrikssyni. Gert er ráð fyrir að niðurstöður loðnumælingarinnar liggi fyrir um miðjan október. Hafrannsóknastofnun segist þá munu gefa út endurskoðaða ráðgjöf um veiðar á fiskveiðiárið 2026/2027.