Yfir 600 vörur frá danska smásölurisanum Salling Group eru nú komnar í hillur hjá Bónus og Hagkaup og samkvæmt tilkynningu frá Högum má búast við að úrvalið verði fljótlega komið í yfir 1.000 vörur. Hagar segja að vörur frá Salling hafi að meðaltali komið inn á yfir 15% lægra verði en sambærilegar vörur sem fyrir voru og í mörgum tilfellum hafi munurinn verið töluvert meiri en það. Vörurnar sem um ræðir eru meðal annars undir vörumerkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Budget. Sjá einnig Hagar styðja við unga frumkvöðla Salling Group er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku og rekur félagið yfir 2.100 verslanir í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Á heimamarkaði Salling í Danmörku rekur félagið meðal annars verslunarkeðjurnar Netto og Bilka. Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir að innkaupasamstarf Haga við Salling Group snúist ekki aðeins um lægra vöruverð heldur líka aukið úrval. „Við erum því afar stolt af þeim ávinningi sem samstarfið við Salling er að skila neytendum og því aðhaldi sem nýtt vöruval og verð skapar á dagvörumarkaði. Þannig leggjum við okkar af mörkum í baráttunni við verðbólgu.“