Viðskipti | mbl | 13.8.2026 | 18:50 Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Finnur Oddsson forstjóri Haga. Ljósmynd/Hagar Setja bókamerki Verslanir Bónuss og Hagkaupa geta boðið upp á lægra verð í kjölfar innkaupasamstarfs Haga við danska smásölufyrirtækið Salling, að því er fram kemur í tilkynningu. Kemur þar fram að 600 vörur danska fyrirtækisins séu nú komnar í hillur verslananna og eru þær að meðaltali á meira en 15% lægra verði en sambærilegar vörur sem fyrir voru. Úrvalið mun halda áfram að aukast og verður fljótlega komið upp í þúsund vörur. Vörurnar sem um ræðir eru m.a. undir merkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Budget. Stærsti aðilinn á dönskum dagvörumarkaði Salling Group er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku, segir í tilkynningunni, en félagið rekur yfir 2.100 verslanir í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Á heimamarkaði Salling í Danmörku rekur félagið þekktar verslunarkeðjur, svo sem Netto, Føtex og Bilka, auk þess að reka Netto víðar í Evrópu og Rimi í Eystrasaltslöndunum. „Það hefur ávallt verið keppikefli okkar að ná sem bestum árangri í innkaupum og tryggja þannig viðskiptavinum sem allra lægst vöruverð. Það er því ánægjulegt að geta sagt frá því að nýtt innkaupasamband við Salling kemur mjög vel út fyrir viðskiptavini okkar,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Haga. „Við sjáum þetta m.a. á því að vörur frá Salling hafa að meðaltali komið inn á yfir 15% lægra verði en sambærilegar vörur sem fyrir voru, og í mörgum tilfellum er munurinn töluvert meiri en það. Þá eru gæðin á nýju vörunum oft og tíðum meiri en á þeim sem fyrir voru. Því til viðbótar höfum við bætt vöruval okkar í ákveðnum flokkum, m.a. lífrænum og umhverfismerktum vörum, sem eru almennt ódýrari en í öðrum verslunum.“ Aukið úrval og mikil gæði Hann nefnir að fyrir íslenska neytendur þýði þetta ekki bara lægra verð heldur líka aukið úrval af vörum af miklum gæðum. „Við erum því afar stolt af þeim ávinningi sem samstarfið við Salling er að skila neytendum og því aðhaldi sem nýtt vöruval og verð skapar á dagvörumarkaði – þannig leggjum við okkar af mörkum í baráttunni við verðbólgu.“ Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Demókratar á hraðferð til vinstri og Trump kætist Sigurður Már Jónsson Þýskur bílaiðnaður í bakkgír Fleira áhugavert „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Sólmyrkvi er hafinn Karoline Leavitt kveður Hvíta húsið Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Snerti taug í mörgum í salnum Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Engar stórar U-beygjur Brugðust þegar mest á reyndi Spá hækkun stýrivaxta Sætara bragð fyrir Bandaríkin Snerti taug í mörgum í salnum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Engar stórar U-beygjur Happy Hydrate til nýrra eigenda Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Happy Hydrate til nýrra eigenda Snerti taug í mörgum í salnum Gæti skapað yfir þúsund störf Elín Helga kveður Hvíta húsið Brugðust þegar mest á reyndi Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Creditinfo Group kaupir EveryData Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Pistlar » Sigurður Már Jónsson Demókratar á hraðferð til vinstri og Trump kætist Sigurður Már Jónsson Þýskur bílaiðnaður í bakkgír Fleira áhugavert Efndu loforðið 4.163 dögum síðar Inga Sæland minnkar við sig Öryggisleitarröð náði út fyrir Leifsstöð Saka Trump um lygar Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Snerti taug í mörgum í salnum Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Engar stórar U-beygjur Brugðust þegar mest á reyndi Spá hækkun stýrivaxta Sætara bragð fyrir Bandaríkin Snerti taug í mörgum í salnum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Engar stórar U-beygjur Happy Hydrate til nýrra eigenda Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Happy Hydrate til nýrra eigenda Snerti taug í mörgum í salnum Gæti skapað yfir þúsund störf Elín Helga kveður Hvíta húsið Brugðust þegar mest á reyndi Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Creditinfo Group kaupir EveryData Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs