- What: Food product recall due to missing ingredient list
- Impact: Consumers who are allergic to soy may be affected
Framleiðslulota af pylsum frá Krónunni hefur verið innkölluð vegna skorts á innihaldslista á umbúðum. Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja við því að neyta pylsanna. Pylsurnar hafa lotunúmerið 758-26210-2. Hægt er að skila þeim aftur í verslun til að fá endurgreiðslu. Þær eru framleiddar af Kjarnafæði Norðlenska fyrir Krónuna. „Ein lota af vörunni fór á markað án innihaldslista. Varan inniheldur sojaprótein sem kemur ekki fram á umbúðum hennar. Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, hefur innkallað vöruna,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar . Til vinstri má sjá pylsupakka úr lotunni sem vantar á innihaldslista. Til hægri er venjulegur pakki af pylsum frá Krónunni.Matvælastofnun