Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 35 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Matvælastofnun Vara við skordýrum í chia-fræjum frá Costco Hugrún Hannesdóttir Diego Skordýr fundust í krukku af chia-fræjum sem eru til sölu í verslun Costro í Garðabæ. Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu, merktri lotunúmeri CH268X, frá sænska fyrirtækinu Trevissan. Costco hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna. Aðsend Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Guðmundur Fertram verður erindreki hjá Hringborði Norðurslóða Hugrún Hannesdóttir Diego Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, verður sérlegur erindreki fjárfestinga og viðskipta hjá Hringborði Norðurslóða, eða Arctic Circle. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hringborði Norðurslóða. „Í því hlutverki mun hann stuðla að auknum fjárfestingum, viðskiptum og frumkvöðlastarfsemi á Norðurslóðum fyrir fjárfesta, fyrirtæki og frumkvöðla,“ segir í tilkynningunni. Viðskiptaþing Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle Business Forum, verður haldið í október. Fyrr í ágúst var greint frá því að Guðmundur hefði verið skipaður í nýja stöðu innan Coloplast sem keypti Kerecis á 175 milljarða króna árið 2023. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 40 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Nepal Átján látin og hundraða saknað eftir skyndiflóð Óvissa ríkir um afdrif hundraða eftir að hamfaraflóð ruddist niður fjalladali í Nepal. Átján hafa fundist látnir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Grindavík á varaafli eftir rafmagnsleysi Hugrún Hannesdóttir Diego Rafmagni hefur verið komið aftur á í Grindavík eftir útleysingu í gær. Rafmagnslaust varð á hluta Suðurnesja sídegis í gær eftir að þrjár háspennulínur Landsnets leystu út. Það voru Svartsengislínur 1 og 2 auk Njarðvíkurlínu. Í tilkynningu Landsnets í morgun segir að varaaflsvélum hafi verið komið fyrir í Grindavík og rafmagn komið aftur á. RÚV Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Tvöfalt fleiri andvíg loðdýrarækt en hlynnt Mun fleiri lýsa sig andvíg loðdýrarækt á Íslandi en hlynnt henni í nýrri skoðanakönnun Maskínu fyrir Samtök um dýravelferð. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Annar handtekinn vegna sverðaárásar í Svíþjóð Lögreglan í Svíþjóð hefur handtekið annan mann vegna sverðaárásarinnar í Fagersta í Svíþjóð. Sá hefur ekki tengsl við skólann sem árásin var framin í. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Týndi tösku með 16 kílóum af marijúana Brynjólfur Þór Guðmundsson Erlendur karlmaður sem flaug hingað með rúm 16 kíló af marijúana í lok júlí var í gær dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar. Fíkniefnin fundust í ferðatösku hans. Ferð mannsins til Íslands gekk ekki áfallalaust fyrir sig. Hann kom hingað frá Frankfurt í Þýskalandi 30. júlí og tilkynnti skömmu eftir komuna að taskan væri týnd. Hún kom til landsins síðar sama dag. Maðurinn sótti hana þá í farangursþjónustu á flugvellinum. Ekki tókst betur til en svo að hann var handtekinn. Hann er talinn hafa tekið smyglið að sér gegn greiðslu. Í öðrum dómi í gær voru tveir dæmdir fyrir smygl á ellefu kílóum af marijúana. Hvor um sig fékk fimm mánaða dóm. Örtröð á Keflavíkurflugvelli í sumar. Safnmynd. Mynd / Aðsend Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Pakistan Hvítvoðungar létust í eldsvoða á spítala í Pakistan Að minnsta kosti 14 ungbörn létust í eldsvoða á spítala í Islamabad í Pakistan. Einu barni var bjargað. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland „Af hverju þarf fólk alltaf að deyja til þess að eitthvað sé skoðað?“ Leiðsögumaður sem varð vitni að banaslysi í Stuðlagili á mánudag segir öryggi á svæðinu ábótavant. Hún segir það með ólíkindum að fólk þurfi að deyja til þess að það komi til skoðunar að gera frekari öryggisráðstafanir við gilið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Misvísandi mælingar um þróun atvinnuleysis Atvinnuleysi jókst talsvert milli júní og júlí samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun óbreytt. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Eggert skipaður forstjóri Hafró Brynjólfur Þór Guðmundsson Eggert Benedikt Guðmundsson verður forstjóri Hafrannsóknastofnunar næstu fimm árin. Þetta varð ljóst þegar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skipaði hann í embættið. Eggert er ekki ókunnugur þessu hlutverki því hann hefur verið starfandi forstjóri Hafró síðan í október. Eggert var forstjóri HB Granda 2005 til 2012 og forstjóri N1 2012 til 2015. Hann var síðar forstjóri eTactica og ráðgjafi hjá Icecure. Frá 2022 til 2025 var Eggert leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu og þar áður forstöðumaður Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir. Eggert Benedikt Guðmundsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál „Augun fimm“ beinast að hættum og tækifærum gervigreindar Fulltrúar fimm ríkja sem deila með sér upplýsingum um öryggis- og leyniþjónustumál hittust í Ástralíu. Þeir ræddu hvernig nota mætti gervigreind til að sporna við hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing ytra Stracta-hótelin sett á sölulista Eigandi Stracta-hótelanna á Hellu ætlar að selja þau. Uppi eru áform um að nærri tvöfalda herbergjafjölda hótelanna. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Yfirmaður CIA á fundi í Moskvu Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA flaug frá Bandaríkjunum til fundar í Moskvu í gær. Ekkert hefur verið gefið upp hvern hann hitti eða hvert tilefni fundarins var. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segir að búið sé að fjarlægja eða gera óvirk öll tundurdufl í Hormússundi Bandaríkjaforseti segir að bandaríski herinn sé búinn að fjarlægja eða gera óvirk öll tundurdufl í Hormússundi. Yfirvöld í Íran og Óman leita lausna til að opna siglingaleið um Hormússund. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tveir í fangelsi fyrir smygl á marijúana Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær tvo bandaríska ríkisborgara á þrítugsaldri til fimm ára fangelsisvistar. Þeir voru staðnir að því að reyna að smygla ellefu kílóum af marijúana til landsins. Efnið var í farangurstösku annars mannanna þegar þeir komu með flugi frá Denver í Bandaríkjunum. Báðir játuðu sök. Ljóst þótti að þeir ættu ekki efnin. Þess í stað hefðu þeir tekið að sé að flytja þau gegn greiðslu. Mennirnir voru handteknir á Keflavíkurflugvelli 19. júlí og úrskurðaðir í gæsluvarðhald degi síðar. Það kemur til frádráttar fimm mánaða fangelsisrefsingu hvors um sig. Mennirnir voru handteknir á Keflavíkurflugvelli. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Ólst upp í fátækt og taldi sig heimska en dúxaði og er doktor í sálfræði Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur og eldabuska, býr með eiginmanni og börnum auk þess að hafa verið með fósturbörn á heimilinu. Sjálf er hún alin upp við erfiðar aðstæður og skort og sér til þess að heimilið sé fullt af mat, samveru og ást. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bandaríkin Lést eftir baráttu við krabbamein Dolly Parton glímdi við krabbamein og var lögð inn á sjúkrahús nokkrum dögum áður en hún lést Hún aflýstu nokkrum viðburðum síðasta árið vegna heilsubrests. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hægur vindur og stöku skúrir Það blæs nokkuð vestast á Vestfjörðum í dag en annars verður fremur hægur vindur á landinu. Skýjað með köflum og stöku skúrir á víð og dreif. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Golf Tók tíma að átta sig á afrekinu Kylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Keili segir rosalegt að vita til þess að hann sé á lista með mörgum af bestu kylfingum heims, yfir þá sem unnið hafa Opna breska áhugamannamótið í piltaflokki. Hann stefnir hátt. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Bíll óökufær eftir umferðaróhapp Engin slys urðu á fólki í umferðaróhappi í Reykjavík í gær eða nótt. Bíll ökumannsins er hins vegar óökufær eftir óhappið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nokkur afskipti af ökumönnum í gærkvöld og nótt sem stöðvaðir voru fyrir ýmis brot. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Aðildarviðræður gætu tekið upp undir tvö ár Það er mat stjórnvalda að hægt væri að ljúka aðildarviðræðum á einu og hálfu til tveimur árum, ef Íslendingar segja já á laugardag. Ef niðurstaðan verður nei hefjast aðildarviðræður ekki á ný. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Lögregla leitar stórtækra ostruþjófa Brynja Dögg Friðriksdóttir Ostrur þykja mikill herramannsmatur. EPA / TERESA SUAREZ Lögregluyfirvöld í New South Wales leita þjófa sem rændu ostrum frá ostrueldi nærri Taree, norður af Sydney í Ástralíu. Þjófarnir rændu yfir 300 pokum með um 400 þúsund ostrum og er verðmæti þeirra metið á 350.000 ástralska dali eða um 30,4 milljónir íslenskra króna. Þjófnaðurinn átti sér stað fyrr á þessu ári. Lögregluyfirvöld greindu þó fyrst frá þjófnaðinum í gær og óskuðu eftir hvers kyns upplýsingum frá almenningi varðandi ránið. Ostrur eru vinsælar á matseðlum veitingastaða í Ástralíu og staðbundnar tegundir eru þekktar fyrir einstakt bragð. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Neyðarástandi vegna þurrka lýst yfir í þremur löndum Mið-Ameríku Yfirvöld í El Salvador, Hondúras og Panama hafa lýst yfir neyðarástandi vegna mikilla þurrka undanfarið. Þurrkarnir eru raktir til veðurfyrirbærisins El Niño. 26. ágúst 2026 kl. 1:12INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búast má við töfum á umferð vegna malbikunarframkvæmda Malbikunarframkvæmdir eru ráðgerðar á Vesturlandi, Reykjanesbraut og Miklubraut á næstunni. Framkvæmdirnar taka mislangan tíma en vegfarendur geta búist við einhverjum töfum og hraðatakmörkunum meðan á þeim stendur. 25. ágúst 2026 kl. 23:04ERLENDAR FRÉTTIR Popptónlist Arnar Eggert: „Risi er fallinn“ Dolly Parton náði að knýja fram einstaka stöðu í karllægum heimi popptónlistarinnar, segir Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur. Hann segir risa vera fallinn. 25. ágúst 2026