Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vill láta reyna á samningana þrátt fyrir forsendubrest

Read Full Article →

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir stjórnvöld ekki hafa hlustað þegar varað hefur verið við sjálfvirkum útgjöldum ríkissjóðs og það séu mikil vonbrigði að verðbólga hafi aukist svo mikið á aðeins einu ári. Forsendubrestur kjarasamninga blasi við og samningsaðilar verði að setjast niður og láta á það reyna að láta samningana lifa út samningstímann; það sé langæskilegast. Flest bendir til þess að verðbólga verði ekki undir 4,7 prósentum í þessum mánuði, sem hefur verið viðmið til þess að kjarasamningar sem skrifað var undir í mars 2024 haldi. Þess vegna er talað um forsendubrest kjarasamninga í haust. „Það er orðið alveg útséð með það að við fáum verðbólgumælingar sem eru innan marka kjarasamninganna þannig að það stefnir í að það þurfi að fara yfir stöðuna núna í haust,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Laun og kaupmáttur hafi hækkað á meðan aðstæður fyrirtækja versna Forsætisráðherra hefur kallað eftir tillögum frá SA og ASÍ í ljósi stöðunnar um aðgerðir stjórnvalda. „Til dæmis höfum við verið að vara við svona sjálfvirkum útgjöldum ríkissjóðs sem teknar hafa verið ákvarðanir um á þessu ári og það hefur ekki verið hlustað á það,“ segir Bjarni. „Vegna forsendubrestsins þurfum við að setjast niður saman samningsaðilarnir og láta á það reyna hvort við séum sammála um framhaldið og hvort við getum sammælst um það að aðstæður séu til staðar til að láta samningana lifa út samningstímann. Það tel ég vera langæskilegast. Hvað þarf til á milli samningsaðilanna er ekki gott að segja en frá sjónarhóli atvinnurekenda þá bara ítreka ég þetta: Launin eru hærri en um var samið, kaupmátturinn hefur skilað sér og hinar ytri aðstæður fyrirtækjanna eru verri.“ Vonbrigði hvað verðbólgan hefur hækkað mikið Bjarni segir markmiðið um hallalaus fjárlög virðingarvert en SA hafi sínar efasemdir eins og reyndar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn líka. Ef ekkert verði að gert séu horfur til þess að verðbólgan verði lengur of mikil. „Ég trúi ekki öðru en að við komumst að þeirri niðurstöðu að þetta meginmarkmið kjarasamninga, sem snýst um það hvað fólk hefur milli handanna fyrir vinnu sína, hafi náð fram að ganga. Það eru hins vegar gríðarleg vonbrigði að við skyldum á síðustu 12 mánuðum hafa sjálf komið okkur í þá stöðu að verðbólgan hafi hækkað þetta mikið.“

Share this article