Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

SA og ASÍ sammála um að ríkisstjórnin verði að axla ábyrgð

Read Full Article →

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segja báðir að stjórnvöld verði líka að axla ábyrgð á að ná niður vöxtum og halda aftur af útgjöldum á sjálfstýringu. Langæskilegast sé að semjendur setjist niður og reyni að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga. Þetta segja þeir Bjarni og Finnbjörn í viðtölum við fréttastofu. Bæði viðtölin er að finna í heild sinni neðar í þessari frétt. Í lok nóvember í fyrra var verðbólga hér á landi 3,7%. Í lok júlí var hún 5,3%. Kjarasamningum, sem skrifað var undir í mars 2024, gæti verið sagt upp ef verðbólga mælist ekki lægri en 4,7% í næsta mánuði. Fátt bendir til þess að það náist. Stjórnvöld verða líka að axla ábyrgð á að ná niður vöxtum og halda aftur af útgjöldum á sjálfstýringu, segja framkvæmdastjóri SA og forseti ASÍ. Hið opinbera verði að halda aftur af sér Bjarni og Finnbjörn segja það báðir mikil vonbrigði að verðbólgan hafi aukist svo mikið. „Vegna forsendubrestsins þurfum við að setjast niður saman, samningsaðilarnir, og láta á það reyna hvort við erum sammála um framhaldið og hvort við getum sammælst um að aðstæður eru til staðar til að láta samningana lifa út samningstímann. Það tel ég vera langæskilegast,“ segir Bjarni Benediktsson. Laun hafi hækkað meira en reiknað var með í kjarasamningunum. „Við þessar aðstæður þarf að halda áfram verkefninu við að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það er ennþá verkefnið. Til þess þarf ríkið og hið opinbera að halda aftur af sér og gefa svigrúm og súrefni. Súrefni fæst ekki með hærri sköttum. Súrefni fæst ekki með því að setja útgjöld ríkisins á sjálfvirkni, eins og menn hafa verið að gera til dæmis í almannatryggingum.“ Það verði að leggja áherslu á að einfalda regluverk, halda aftur af gjaldskrám og sköttum og ryðja brautina fyrir nýja verðmætasköpun. „Vegna þess að það er í sjálfu sér auðvitað eftirsóknarvert að við hér á Íslandi getum borgað hvað hæst laun í heimi en þá þurfa líka aðstæðurnar að vera til staðar og þær eru það ekki í dag,“ segir Bjarni. Stjórnvöld verða líka að axla ábyrgð á að ná niður vöxtum og halda aftur af útgjöldum á sjálfstýringu, segja framkvæmdastjóri SA og forseti ASÍ. „Við ætlum ekki ein að borga niður verðbólguna“ Forsætisráðherra kallaði í vikunni eftir tillögum frá Samtökum atvinnulífsins og ASÍ til að bregðast við þeirri hugsanlegu uppnámi kjarasamninga. „Það stendur ekki á okkur að koma með tillögur. Þær liggja alveg fyrir og bæði ríkisstjórnin og Samtök atvinnulífsins vita hverjar þær eru,“ segir Finnbjörn. „Við verðum að setjast niður. Það er ekki fyrsti kostur okkar að fara að segja upp kjarasamningum. En við ætlum ekki ein að borga niður verðbólguna.“ Finnbjörn bendir á að við gerð kjarasamninganna 2024 hafi ríkið og sveitarfélög heitið því að halda aftur af verðhækkunum. „Það hefur bara því miður ekki gengið eftir. Það vita allir hvað er um að ræða og meira að segja ríkisstjórnin er enn að bæta í. Nú er búið að boða hækkun á komugjöldum hjá heilsugæslunni og á innritunargjöldum hjá háskólanum. Allt þetta fer inn í verðbólguna þannig að það heldur áfram að hækka sem átti ekki að gerast samkvæmt loforðum ríkisstjórnarinnar.“ Þá hafi sveitarfélögin ekki heldur staðið við sitt. „Okkar skilaboð eru einfaldlega að það þurfi að halda aftur af verðhækkunum. Við þurfum að taka höndum saman um það að við getum treyst því að verð hækki ekki hér þangað til samningar renna út í febrúar 2028. Þá verða sveitarfélög, þá verður ríkið og þá verða fyrirtæki að taka á sig ábyrgð á að ná niður verðbólgu með okkur vegna þess að launafólk eitt og sér borgar ekki niður verðbólguna.“ Stjórnvöld verða líka að axla ábyrgð á að ná niður vöxtum og halda aftur af útgjöldum á sjálfstýringu, segja framkvæmdastjóri SA og forseti ASÍ.

Share this article