Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kínverskt skipafélag hefur reglulegar siglingar um Norðurslóðaleiðina

Read Full Article →

Kínverska skipafélagið Sea Legend hefur á morgun reglulegar siglingar gámaflutningaskipa um Norður-Íshafið á hraðleið yfir til Evrópu. Ætlunin er að sigla leiðina vikulega fram í október. Sea Legend sigldi í fyrra gámaskipum í tilraunaskyni sömu leið, frá kínversku hafnarborginni Ningbo meðfram ströndum Rússlands til Felixstowe á Englandi. Það segir ferðina hafa tekið tuttugu daga sem er helmingur þess tíma sem tekur að sigla frá Kína til Evrópu um Súes-skurðinn. Kínverjar kynntu 2018 fyrirætlanir sínar um fjölgun ferða um norðurslóðir undir heitinu Silkileiðin um Norðurpólinn. Danska skipafélagið Maersk sigldi sömu leið árið 2018 og metfjöldi skipa sigldi Norðursjávarleiðina í fyrra, 25 samanborið við 15 árið áður, samkvæmt upplýsingum tryggingafélagsins Allianz Commercial. Sea Legend fyrst til að hefja reglulegar siglingar Sea Legend er fyrsta skipafélagið sem hefur reglulegar siglingar um Norðurslóðaleiðina, sem standa yfir í sjö vikur að þessu sinni, eða til 3. október. Það samsvarar nokkurn veginn þeim tíma sem unnt er að sigla leiðina án liðsinnis ísbrjóta. Fyrirætlanirnar hafa vakið áhyggjur um að skipaferðirnar flýti fyrir bráðnun íss á norðurslóðum. Mörg stór skipafélög hafa undirritað yfirlýsingu Ocean Concervancy, bandarískra umhverfisverndarsamtaka, um að forðast flutningaleiðir um norðurslóðir vegna þeirrar hættu sem stafað geti af náttúrunni. Sérfræðingar álíta þó að til framtíðar verði Norðurslóðaleiðin mikilvæg fyrir flutninga. Skip Sea Legend munu á þessum tíma flytja innan við hálft prósent þeirra vara sem vikulega berast frá Asíu til Evrópu og samtals um 0,1 prósent árlegs flutnings. Gámaskipið Dubaiturninn leggur upp frá Ningbo til Felixtowe annað kvöld, að sögn hafnarstarfsmanns sem AFP-fréttaveitan ræddi við í dag.

Share this article